Og takk fyrir það gamla.
Fjölskyldan er búin að hafa það afar gott um hátíðirnar. Reyndar fengum við Eva Þórey ælupest á milli jóla og nýárs en vorum búin að jafna okkur og orðin nokkuð kræf fyrir áramótin. Stelpurnar fengu mikið og fallegt í jólagjöf og var nokkuð gaman af Ásdísi Karen þar sem hún var að taka upp pakka í fyrsta skipti alveg sjálf.
Dagskráin var hefbundin þessi jólin. Aðfangadagur var frábær í Básahrauninu – jólasveinarnir komu færandi hendi um morguninn og í hádeginu komu fjölskyldur okkar í möndlugraut. Það var óvænt ánægja að það kom annar flokkur jólasveina meðan við gæddum okkur á grautnum og voru þeir heldur hressari og líflegri en þeir sem komu fyrr um morguninn. Að þessu sinni fékk Heiðrún möndluna, sem betur fer því húsbóndinn hafði fengið hana árinu áður og var grunaður um svik og undirferli við grautargerðina.
Jólin komu að venju á slaginu sex og eilitlu síðar settist litla fjölskyldan prúðbúin við matarborðið í Básahrauninu. Hamborgarhryggurinn sveik ekki frekar en árið áður og þótti það góður að ekki var pláss eftir fyrir eftirrétt.
Í hádeginu á jóladag var haldið í boð hjá ömmu og afa á Eyrarbakka og seinnipart aftur í Þorlákshöfn í boð hjá Eddu og fjölskyldu. Annan dag jóla rúntuðum við reykjanesbrautina til Keflavíkur þar sem amma og afi biðu með drekkhlaðið borð kræsinga.
Áramótum var fagnað hjá ömmu og afa á Setberginu. Þegar klukkuna vantaði sirka kortér uppá nýárið fórum við út að fylgjast með skotgleðinni en Eva Þórey staldraði stutt við – flúði aftur inn og undir teppi hjá Eddu frænku sinni þar sem hún er ekkert alltof hrifin af látunum. Ásdís Karen var hins vegar öllu hugrakkari og var ekki sátt þegar við fórum inn tæpum klukkutíma síðar.
Að öðru, þá hef ég ákveðið að loka skráningum í gestabókina hér á síðunni. Ástæðan er árásir kæfu-vélmenna (e. spam robots) sem herja á vefi sem þennan og eru öllum til ama. Við hvetjum ykkur hins vegar að nota athugasemdirnar og láta vita af ykkur.
- jón óskar









Nýlegar athugasemdir