Færslusafn 2007

Ég heiti pabbi

Stelpurnar skelltu sér í föt af pabba sínum og þóttust vera hann einn daginn. Greinilega svolítið skrítinn svipur á pabba þeirra.

Nebbalingur

Fæturnir brugðust Evu Þórey í hálkunni sem var í Þorlákshöfninni á þriðjudaginn. Hún datt í skólanum og afleiðingin var rautt, skrámað og bólgið nef.

Doktor Helgi skoðaði hana í gær og fann ekkert alvarlegt að henni. Eigum þó að láta kíkja aftur á hana á morgun (föstudag) ef bólgan er ekki farin að hjaðna.

Helena situr þessa dagana sveitt yfir bókalestri. Fyrra prófið sem hún tekur er á mánudaginn næstkomandi. Það er því útlit fyrir að undirritaður verði “einstæður faðir” með tvö börn um helgina. Hef grun um að við feðgin verðum upptekin við að draga fram jólaskraut og seríur. Setti ljósaseríuna á húsið í blíðunni á mánudag og klæjar í puttana að setja upp fleiri ljós – innan sem utan ;o)

Æ þetta minni

Betra seint en aldrei…

Elsku kúturinn okkar, Ómar Páll, átti afmæli síðastliðinn mánudag 26. nóvember.

Til hamingju með daginn – um daginn! Vonum þú hafir notið dagsins og fengið þér verðskuldaðan kaldan Kalla (Carlsberg öl)!

- B28

Arnór Daði

Jón Óskar tók nokkrar myndir af Arnóri Daða í dag og hér er ein af þeim. Algjör dúlla :)

Helgin

Róleg helgi. Helena var að læra alla helgina svo það var lítið gert. Dæmigert að þegar maður hefur tíma til að sitja yfir enska boltanum þá er landsleikjahlé, búhú.

Helena og Eva Þórey fóru á bíngó á Eyrarbakka í gær. Eva Þórey var lukkuleg í fyrri hálfleik og vann hún kastala, golfsokka, golfhanska og fimmþúsund króna inneign í golfverslun. Ekki slæmt á fyrsta bíngó!

Læt fylgja með mynd af systrunum við útsýnispallinn í Þorlákshöfn. Við fórum eftir skóla/leikskóla föstudaginn 9. nóv og tókum nokkrar myndir á nýju myndavélina :o )

Blöff

Þetta var bara eitt gubb, Ásdís Karen var orðin hress seinnipart miðvikudags. Sem betur fer.

Sagan endalausa: Ásdís Karen veik

Helena sótti Ásdísi Karen áðan þegar hringt var frá leikskólanum; sú stutta búin að gubba.

Það er oft talað um að börn þurfi reglu í lífið en að fá umgangspestir á um það bil tveggja vikna fresti er pínu útúr kú! Lukkulega vörðu síðustu veikindi stutt, um einn sólahring. Við vonum að hún hristi gubbupestina fljótt og örugglega af sér. Og þó maður eigi alltaf að deila með sér þætti mér vænt um ef Ásdís sleppti því í þetta skiptið ;o)

Sætar stelpur

Eva Þórey og Ásdís Karen við útsýnispallinn í Þorlákshöfn

Okkur langaði líka að óska afa Kalla til hamingju með afmælið en hann á afmæli í dag.

-Helena

Óheppni

Á fimmtudagskvöld fyllti ég báða bílana af eldsneyti þar sem lítið var eftir í tönkunum.

Á föstudagsmorgun bárust mér eftirfarandi skilaboð:

“Til hamingju med daginn. I dag veitir Dælulykillinn 5 kr. afslátt til midnættis. Kær kv. Atlantsolía”.

Mér var ekki skemmt.

Elsku pabbi okkar

Til hamingju með afmælið þitt í dag :)

Þínar stelpur Eva Þórey, Ásdís Karen og auðvitað mamma líka :)