Nýjar myndir!!!

Jæja þá erum við fjölskyldan í sumarfríi. Jón Óskar er búinn að vera í mánuð í fríi og verður einn mánuð í viðbót því hann átti inni fæðingarorlof sem verður auðvitað að nýta. Svo í miðjan ágúst byrjar hann að vinna í Landsbankanum í Reykjavík. 
 
Eva Þórey fór á miðvikudaginn til afa síns og ömmu í Keflavík og fékk að vera tvær nætur en við förum í bæinn í dag og sækjum hana. Hún er samt alls ekki tilbúin að koma heim því hún vill helst vera í 10 nætur.
 
Í júní fórum við í sumarbústað í tæpa viku í Miðhúsaskóg sem er rétt hjá Úthlíð. Það var ekkert smá notalegt og potturinn mikið notaður, þó sérstaklega af Evu Þóreyju :)
 
Annars erum við lítið búin að gera af okkur í sumar því það er ekkert sumar búið að vera, alltaf rok og rigning.  Síðustu daga erum við búin að vera að vinna í garðinum. Erum að setja niður tré í kringum húsið.
 
Ásdís Karen er ekkert á leiðinni að fara að labba, hún ætlar sér eitthvað að bíða með það.  Henni finnst nóg að taka eitt skref og búið. Vonum samt að það fari að styttast í þetta því hún er farin að slíta svo öllum buxunum sínum. Svo er hún bara svo tilbúin í þetta en það vantar smá þor því ekki vantar viljann.
Í haust ætla ég svo að reyna fyrir mér í skóla en ég er að fara í fjarnám frá Háskólanum á Akureyri í leikskólakennarafræði. Er pínu spennt og pínu kvíðin en þetta hlýtur að reddast allt saman :)
Ég setti hvorki meira né minna en 3 albúm inn svo endilega kíkið á myndirnar og endilega kvittið í gestabókina líka, það er svo gaman að vita hver er að fylgjast með.
 
Kveðja, Helena

6 athugasemdir við “Nýjar myndir!!!”

  1. Kjartan Fr. says:

    Flottar myndir. Biðjum að heilsa öllum.
    kv. K og Co.

  2. Ragna says:

    ekkert sumar búið að vera segirðu, samt eru þið öll svo súkkulaði brún;) en þú tekur skólann í nefið, við erum ekki systur fyrir ekki neitt. En flottar myndir…Ásdís Karen er snigðug eins og frænka sín, hún er löngu byrjuð að labba en er bara að fela það því hún nennir þvi ekki, margt er líkt með skildum;)

  3. Helena says:

    Það kæmi mér sko ekkert á óvart ef hún færi leynt með þetta :)

  4. Bebba says:

    Mér líst vel á skólann Helena! ;) Til hamingju með inngönguna!

    *knús* til ykkar allra úr veikinda-´bólinu

    p.s. Ég hef a.m.k. tvisvar kommentað hér og svo ætlað að skoða það einhverjum dögum seinna (hvort það væri komið svar) en þá var bara ekkert komment!!! Svo fattaði ég það núna rétt áðan að ég ýti alltaf á “loka glugga” og held svo bara áfram á bloggrúntinum! ;) -Gerði það t.d. áðan en fattaði það um leið og ég ýtti, ólíkt hinum skiptunum! Hehe ;)

  5. Bebba says:

    hmm… þetta átti nú ekki að vera allt í klessu! ;)

  6. Ragna og Eva Þórey afmælis stelpur says:

    Hæhæ….okkur finnst tími til kominn á nýja færslu, og þar sem við eigum afmæli á morgun viljum við afmælisfærslu;) Svo er vert að minnast á það að við tökum á móti gjöfum á þykkvaflötinni og ekki væri verra að fá e-ð fallegt og dýrt frá Akureyri. Takk fyrir…ég elska ykkur Mamma og pabbi (Eva) sjáumst á morgun.

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE