Jæja þá erum við fjölskyldan í sumarfríi. Jón Óskar er búinn að vera í mánuð í fríi og verður einn mánuð í viðbót því hann átti inni fæðingarorlof sem verður auðvitað að nýta. Svo í miðjan ágúst byrjar hann að vinna í Landsbankanum í Reykjavík.
Eva Þórey fór á miðvikudaginn til afa síns og ömmu í Keflavík og fékk að vera tvær nætur en við förum í bæinn í dag og sækjum hana. Hún er samt alls ekki tilbúin að koma heim því hún vill helst vera í 10 nætur.
Í júní fórum við í sumarbústað í tæpa viku í Miðhúsaskóg sem er rétt hjá Úthlíð. Það var ekkert smá notalegt og potturinn mikið notaður, þó sérstaklega af Evu Þóreyju
Annars erum við lítið búin að gera af okkur í sumar því það er ekkert sumar búið að vera, alltaf rok og rigning. Síðustu daga erum við búin að vera að vinna í garðinum. Erum að setja niður tré í kringum húsið.
Ásdís Karen er ekkert á leiðinni að fara að labba, hún ætlar sér eitthvað að bíða með það. Henni finnst nóg að taka eitt skref og búið. Vonum samt að það fari að styttast í þetta því hún er farin að slíta svo öllum buxunum sínum. Svo er hún bara svo tilbúin í þetta en það vantar smá þor því ekki vantar viljann.
Í haust ætla ég svo að reyna fyrir mér í skóla en ég er að fara í fjarnám frá Háskólanum á Akureyri í leikskólakennarafræði. Er pínu spennt og pínu kvíðin en þetta hlýtur að reddast allt saman
Ég setti hvorki meira né minna en 3 albúm inn svo endilega kíkið á myndirnar og endilega kvittið í gestabókina líka, það er svo gaman að vita hver er að fylgjast með.
Kveðja, Helena









Nýlegar athugasemdir