Færslur í May 2006
Amma Veiga á afmæli
Eva Þórey fjörkálfur :)
Það er búið að vera svo gott veður undanfarið að Eva Þórey sést varla inni. Hún notar hvert tækifæri til að komast út sem er bara besta mál, enda er hún uppgefin á kvöldin og sofnar alveg um leið og hún fer upp í rúm.
NEI!
Við eigum EKKI von á 3ja barninu, við stöndum EKKI í húsakaupum, við erum EKKI að fara gifta okkur …(strax ;o))
“Stórfréttin” var í raun lítil tilraun sem við gerðum til að kanna viðbrögð hér á síðunni. Á teljara síðunnar sjáum við að það eru margir að fylgjast með en einungis örfáir þora að tjá sig eða skilja eftir kveðju – netleiðis alltént.
Glensið virðist hafa skilað sér í fleiri heimsóknum skv. teljaranum en feimnin enn jafn áberandi ;o)
Kommon, þið höfðuð nett gaman af þessu er það ekki ?
Bryndís Eva 1 árs
Í dag þann 5. maí varð hún litla frænka hún Bryndís Eva 1 árs. Vonum ekkert heitar en að þú hafir átt góðan dag elsku Bryndís Eva okkar og hafi liðið vel. Bebba átti svo afmæli þann 3. maí. Til hamingju með afmælin mæðgur. Við hugsum stöðugt til ykkar.
Um síðustu helgi skruppum við til Keflavíkur í heimsókn. Bjarki bróðir var nýbúinn að fá trambolín og var það mikið notað þennan daginn. Eva Þórey og Aron Elvar frændi hennar sáust ekkert inni því það var svo gaman að hoppa á tramboíninu. Nú bíður Eva Þórey eftir því að afi Jói verði í landi í 2 daga í röð svo hún fái að fara til þeirra og gista.
Ásdís Karen er farin að babla meira og meira. Hún er loksins farin að segja mamma oftar en til hátíðarbrigða en hún hefur verið ansi sparsöm á þetta. Svo er það svo fyndið þegar fólk er að borða í kringum hana eða þegar hún sér mat þá rekur hún út úr sér tunguna og segir nammnammnamm, hún rekur tunguna langt út við hvert namm.
Eva Þórey er í algjöru uppáhaldi hjá henni enda eltir hún stóru systur hvert sem hún fer og hlær að nánast öllu sem hún gerir. Eva Þórey er líka svakalega dugleg við að fylgjast með henni og passa hana, stundum einum of ![]()
Ég heyrði Evu Þórey syngja um daginn “og þá var kalt í höllinni höllinni höllinni og þá var kalt í höllinni, höllinni”.
Endilega fylgist vel með á næstu dögum því ég er að spá í að setja inn stórfrétt.
-Helena









Nýlegar athugasemdir