Færslur í April 2006

Páskarnir búnir

Við erum ekki alveg að standa okkur í skrifum hér enda allir eflaust hættir að fylgjast með.
Við erum búin að hafa það fínt um páskana fyrir utan ælupest sem við Eva Þórey nældum okkur í og svo fékk Ásdís Karen smá hitavellu en ekkert til að hafa áhyggjur af.

Við fórum í afmæli á laugardaginn en hún Kristjana Eir litla frænka okkar varð 1 árs þann 14. apríl.  Annars erum við lítið búin að gera nema að slappa af eða þannig…..kannski ekki mikið hægt að slappa af núna þar sem Ásdís Karen er farin að standa alls staðar upp og fikta.
Við erum reyndar búin að fara daglega á Eyrarbakka þar sem Heiðrún, Sara og Sylvía eru í heimsókn yfir páskana.

Hér var allt fullt af páskaeggjum í gær og fengu stelpurnar að opna sitthvort í gærmorgun.  Ásdís Karen fékk aðeins að bragða á sínu páskaeggi og fannst það svakalega gott enda var hún öll út í súkkulaði á eftir. Eva Þórey fékk púkaegg en henni fannst bara mest spennandi að opna páskaeggið og sjá hvað var inni í því en hún borðaði lítið af því.  Hún kom með eggið til pabba síns og sagði að það væri vond lykt af því, var að vona að pabbi hennar myndi segja það vera ónýtt svo hún fengi að opna annað.
 
Í dag fór Eva Þórey svo í bíó á Ísöldina með pabba sínum, afa sínum, Söru og Sylvíu  og var víst svaka stuð en hún þurfti nú samt að tala svolítið mikið á myndinni.  Á morgun fara svo Heiðrún og stelpurnar aftur til Ítalíu og eigum við eftir að sakna þeirra mikið.
 
Að lokum….við skelltum inn fullt af nýjum myndum
 
-Helena
 
Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE