Færslur í March 2006
Flensan :(
Farin að skríða
Ásdís Karen ákvað í gær að nú væri tími til komin að byrja að skríða. Hún hitti frænku sína hana Kristjönu Eir í síðustu viku og var svo fúl að geta ekki skriðið á eftir henni þannig að hún ákvað að fara að reyna. Hún byrjaði um helgina að reyna en hætti yfirleitt við þegar hún var búin að taka eitt skriðskref en í gær tók hún bara nokkur skref og var ekkert smá ánægð að komast þangað sem hún ætlaði sér.
Eva Þórey er búin að vera lasin síðan á föstudaginn en hún er öll að koma til enda hitalaus í dag og fer væntanlega í leikskólann á morgun.
Við fórum í skírn sunnudaginn 5. mars en litla þeirra Gógóar og Kjartans var þá skírð. Hún var skírð Edda í höfuðið á móðurömmu sinni. Til hamingju með þetta fallega nafn.
Þessi mánuður er mikill afmælismánuður hjá fjölskyldunni. Heiðrún systir átti afmæli þann 5. mars, ég sjálf þann 8. mars, Edda þann 13. mars og svo er Heiða systir þann 20. mars…….til hamingju með afmælið!!!
Viltu fá göt í eyrun?
Nýjar myndir!!
Þessar tennur hjá henni Ásdísi Karen ætla sko að láta bíða eftir sér. Við erum alltaf segja að þær séu að koma en svo líða nokkrar vikur og ekkert gerist. Nema á mánudaginn þá tók ég eftir einhverju hvítu við hliðina á framtönnunum niðri og haldið ekki að þar sé komin tönn! Við vorum að fylgjast svo mikið með framtönnunum uppi að við gleymdum að kíkja hvort það væri eitthvað að gerast í neðri góm.
Það gengur alveg svakalega vel með Ásdísi Karen hjá ömmu sinni. Hún er oftast lítil í sér fyrst á morgnanna og svo er hún bara góð eða þangað til ég kem að sækja hana þá kemur smá skeifa og svo passar hún vel upp á mig eftir það.
Ásdís Karen stóð upp í rúminu sínu um helgina og var ekkert smá montin. En hún ætlar greinilega ekkert að flýta sér að byrja að skríða. Hún verður 9 mánaða í næstu viku en á þessum aldri var hún Eva Þórey orðin algjör skæruliði og farin að rífa og tæta út um allt enda farin að skríða 7 mánaða. Annars er þetta bara gott svona, maður veit alltaf hvar hún er stödd hverju sinni því hún kemst ekki langt frá manni.
Eva Þórey fór í Línu Langsokkbúningi á öskudaginn og var alveg svakalega ánægð með það. Henni fannst þó mest spennandi að láta mála freknur á sig. Það gengur orðið miklu betur að vekja hana á morgnanna eftir að systir hennar er farin að vakna á sama tíma, sem betur fer. Hún er nefnilega yfirleitt svakalega morgunfúl en núna vaknar hún alveg um leið og við köllum á hana og bara þokkalega hress.
Það er mikið um veikindi í kringum okkur núna en Ragna Kristín systir fékk svo mikla berkjubólgu að það þurfti að leggja hana inn á spítala. En hún er öll að koma til og fékk hún að koma heim í dag. Aron og Kristjana eru búin að vera lasin og svo er Bryndís Eva komin með RS vírusinn. Vonum að þau fari nú öll að ná sér.
Á sunnudaginn næstkomandi förum við í skírn til Grindavíkur því lillan þeirra Gógóar og Kjartans fær loksins nafn.
Ása, Þóra og Palli áttu afmæli þann 1. mars og óskum við þeim til hamingju með það.
Og síðast en ekki síst, nýjar myndir í albúmi.
- Helena









Nýlegar athugasemdir