Færslur í February 2006
Nýtt!!
Nýjar myndir!
Ásdís Karen ætlar aldeilis að taka þessa tanntöku með trompi 4 komnar á stuttum tíma og svo eru 2 í viðbót alveg að fara að gægjast í gegn. Hún er búin að vera mjög pirruð í gómnum síðustu daga og er alltaf að vakna á næturnar. Er samt algjör engill núna að leika sér á gólfinu með toppinn nánast ofan í augu…..er það ekki hvort eð er í tísku. Eyrún og Emma Hrönn ætla að koma í næstu viku og klippa hana. Það verður þriðja skiptið sem hún er klippt aðeins 8 mánaða.
Kíktum á Bryndísi Evu frænku á Barnaspítalann á laugardaginn. Það er alveg ótrúlegt hvað hún er dugleg. Var meira að segja farin að kíkja út um annað augað þennan daginn en kíkti nú samt ekki á okkur í þetta skipti heldur blikkaði hún mig í staðinn. Það er ekki að sjá á henni að hún hafi sofið í 2 mánuði heldur eins og hún sofi bara vært og sé bara alveg að fara að vakna. Svo geyspaði hún þvílíkt á meðan við vorum hjá þeim, ekkert smá krúttlegt.
Hún fór að vísu að krampa á sunnudaginn en vonandi fara réttu lyfin að finnast til að koma í veg fyrir þessa krampa og svo hún fari að vakna. Hún er alveg ótrúlega sterk og kemst yfir þetta.
Elsku Hjörleifur Már, Bergþóra og Bryndís Eva við hugsum stöðugt til ykkar.
Við skelltum loksins inn nýjum myndum enda kominn tími til.
-Helena
Framkvæmdir
Okkar ástkæri sturtuklefi hefur verið í lamasessi í of langan tíma. Fúgurnar á milli flísa voru farnar að springa og hætta á vatnsleka inn í vegg var yfirvofandi. Því réðist heimilisfaðirinn í framkvæmdir; meitla skemmda fúgur í burtu og smyrja glænýrri og rakaheldri fúgu í staðinn. Þessar framkvæmdir hófust fyrir all löngu en eins og sönnum verktaka sæmir seinkaði verkinu þangað til í gær.
Um leið og ég kom heim úr vinnu hafði ég fataskipti og réðist sem óður væri á þær fúgur sem átti eftir að fjarlægja. Nokkrum lítrum af svita seinna var búið að hreinsa á milli flísa, þrífa yfirborðið, ryksuga, klína spánýrri fúgu á milli, kítta í 90° horn og þrífa aftur.
Stoltur verktakinn fór því í langa og langþráða sturtu í morgun, hrósandi sigri yfir eigin leti líkt og hann hefði unnið heimsmeistaratitillinn í fúgun.
Það er líka gaman að segja frá því að í gær heyrðum við vísi að fyrsta orðinu hjá Ásdísi Karen: “bababababa…” tautaði sú litla eins og henni er einni lagið. Vitaskuld eigna ég mér þetta og þýði á íslensku sem “pabbi”, öðrum skilningi vísa ég vitaskuld á bug ;o)
Ásdís Karen er líka farin að geta sýnt hversu stór hún er, með því að lyfta höndum hátt á loft, en það gerir hún bara samkvæmt eigin duttlungum og skapi.
- jón óskar









Nýlegar athugasemdir