Tennurnar hrannast niður

Haldið ekki að ég hafi fundið tvær tennur til viðbótar hjá Ásdísi Karen. Í hádeginu þegar ég var að gefa henni að borða þá lokaði hún bara munninum og neitaði að borða sem er svo sem ekkert nýtt. Eftir að ég var búin að reyna að plata ofan í hana matinn sem gekk heldur ekki neitt ákvað ég að kíkja upp í hana og viti menn þarna glitti bara í tvær tennur. Þetta eru tennurnar sitthvoru megin við framtennurnar uppi þannig að hún verður aldeilis frýnileg með þær tvær og tvær framtennur niðri. 
 
Eva Þórey fór um helgina í sumarbústað til ömmu Veigu og afa Óma með Gesti, Gilli og Dai. Það var víst hörkustuð og mikið farið í pottinn. Þegar hún kom heim á sunnudeginum var hún voðalega þreytt eitthvað og rjóð í kinnum svo þegar líða fór á daginn sáum við að hún var að verða lasin. Hún er enn veik en sæmilega hress samt. Er t.d. í fullu fjöri fyrri part dags en svo þegar líða tekur á daginn fer að draga af henni og hitinn hellist yfir hana. Vona bara að þetta taki fljótt af.
 
Þessa dagana er hún voðalega mikið að tala um Guð og í kvöldmatnum fór hún að spá í kettinum Kasper sem amma Snjólaug átti, hvort hann væri með opin augun hjá Guði og hvort hann væri í kistu hjá honum. Eftir að hafa hugsað sig lengi um spyr hún hvort Guð eigi ekki örugglega kattamat handa Kasper!!
Ótrúlegustu hlutir sem hún spáir í!!
 
Að lokum viljum við biðja alla að biðja fyrir elsku litlu frænku okkar henni Bryndísi Evu sem er svo lasin núna og þarf á kröftum ykkar allra að halda. Elsku Bebba og Hjörleifur þið fáið allan okkar styrk og við hugsum stöðugt til ykkar. Vonum ekkert heitar en að Bryndís Eva fari nú að sigrast á þessu enda er hún algjör hetja og á ekki langt að sækja það.
 
  
Fyrir elsku Bryndísi Evu okkar.
 
 
 - Helena

3 athugasemdir við “Tennurnar hrannast niður”

  1. Heiða says:

    Til hamingju með tennurnar Ásdís Karen. Þú ert ótrúlega dugleg stelpa. Það er alveg ótrúlegt hvað kemur út úr henni Evu Þórey hún verður sko algjör brandarakona.
    Fallegur texti sem þú skrifar til Bebbu, Hjörleifs og Bryndísar Evu. Við höldum áfram að kveikja ljós fyrir hetjuna okkar, einnig biðjum við fyrir henni.
    Bestu kveðjur frá Bifröst

  2. Til hamingju með tönnslurnar þínar. Hlakka til að sjá þær. Verð nú í betra skapi en síðast þegar við hittumst.
    Fór til dagmömmuna í dag og það gekk bara vel fór eiginlega ekkert að gráta og það er sko fullt af krökkum þar.
    Kv þín frænka

  3. Bebba says:

    Takk fyrir kæra fjölskylda. *Knús*

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE