Færslusafn 2006

Suðurlandsvegur

Um suðurlandsveg fara um 11 þúsund bílar á dag (sudurlandsvegur.is). Vegfarendur óttast margir að ferðast þarna um enda líkir Séra Baldur Kristjánsson ástandinu við villta vestrið.
 
Skorum á Alþingi að tvöfalda Suðurlandsveg!
 
 
- jón óskar

Pabbi þrítugur!!

Elsku pabbi okkar, til hamingju með
afmælið þann 9. nóvember.
Þínar dætur, Eva Þórey og Ásdís Karen

Fjórir

…dagar í Amsterdam…
 
Amsterdam Baby!!!

Heim í heiðardalinn

Grétar Ingi og Júlíana eru komin heim til Íslands á ný eftir tæplega 10 vikna dvöl í Flagstaff, AZ, USA.
Ég heyrði stuttlega í þeim áðan og þá voru þau í þann mund að leggja sig eftir langt og strangt ferðalag. Svo tekur væntanlega við aðlögunartími vegna 7 klukkustunda tímamunar á Flagstaff og Þorlákshöfn.
 
Velkomin heim gæskurnar eða: Welcome home darlings..
 
- jón óskar
 
ætli maður þurfi ekki að tala ensku við þau fyrst um sinn?? ;o)

Nýjar myndir, nýr frændi og ferðalag

Sæl öll og langt síðan síðast!
 
Við erum búin að setja inn glás af myndum, ykkur til skemmtunar og dægrastyttingar. Komin eru inn 2 albúm frá ágúst mánuði og von er á albúmi frá september.
 
Gestur og Dai eignuðust dreng þann 28. september sl. Allt gekk vel og er pilturinn sláandi líkur karli föður sínum. Við látum mynd fylgja af Gesti Júníor hér að neðan.
 
Ég og Helena ákváðum að skella okkur í 5 daga ferð til Amsterdam í nóvember. Tilefnið er þrítugs afmæli mitt þann 9. nóvember og verðum við úti 7. – 12. nóvember. Hjörleifur, bróðir Helenu, og Bergþóra unnusta hans ætla að koma með okkur og veita okkur félagsskap og hlakkar okkur öllum gríðarlega til!!

 
Munið að von er á september-myndaalbúmi og við ætlum að reyna taka okkur á varðandi skrif hingað inn ;o)
 
óver and át….

Lífið og tilveran

Þann 6. september kvaddi litla frænka okkar hún Bryndís Eva okkur. Þá var hún búin að berjast hetjulega í 9 mánuði við sjúkdóm sinn eða síðan í desember 2005. Bryndís Eva var alltaf svo lífsglöð enda sáum við hana nánast aldrei öðruvísi en brosandi eða hlæjandi áður en hún veiktist. Og meira segja í veikindunum hélt hún áfram að heilla alla upp úr skónum. Hún sigraðist á öllum þeim hindrunum sem urðu í vegi hennar og kom sífellt á óvart. Hún var líka svo heppin að eiga bestu foreldra sem hugsast gætu sem hjálpuðu henni ennþá betur í gegnum hennar veikindi. Bryndís Eva varð að hetju og er enn og verður alltaf litla hetjan okkar sem kenndi okkur að meta lífið á annan hátt.

Þessi mánuður er búinn að vera mjög fljótur að líða. Ég er búin að vera á fullu í skólanum og fer allur frítími, sem eru kvöldin, í lærdóm. Ég var að hætta í vinnunni á mánudaginn þannig að ég get kannski reynt að læra eitthvað á daginn líka sem er mun skárra. Veiga (tengdó) er alltaf passa Ásdísi á morgnana og var Eva Þórey líka mikið hjá ömmu sinni í síðustu viku því þær systur eru báðar búnar að vera veikar. Þannig að það er gott að hafa tengdó hér nálægt því hún bjargar okkur alveg.

Ásdís er náttúrulega löngu farin að labba enda hleypur hún hér fram og til baka um húsið. Hún er algjör útikerling og vill hún helst alltaf vera úti. Eva Þórey var að byrja í fimleikum og er svakalega spennt fyrir því og finnst reglulega gaman. Hún er líka orðin 5 ára og það er greinilega sá aldur sem maður má allt og getur allt. Hún er byrjuð í skólastund í leikskólanum og þá eldist hún ennþá meir (að henni finnst). Stundum finnst okkur eins og hún sé orðin 14 ára. Þegar hún kemur heim úr leikskólanum fer hún iðulega inn í skáp og nær sér í pils og helst nælonsokkabuxur (eða stelur nælonsokkum frá mér) og svo er hún að spegla sig, maður bíður bara eftir að hún heimta að fara að mála sig (vonum að það verði langt í það).

Þær systur eru mjög duglegar að leika sér saman og er sú stutta mjög dugleg að elta Evu Þóreyju út um allt og hermir allt eftir henni. En þær geta líka rifist og gefur Ásdís Karen þá ekkert eftir.

Látum vonandi sem fyrst vita af okkur aftur.

Kveðja frá fjölskyldunni.
 
-helena

Afmælisdagurinn

 
Þá kom að því maður! Eftir langa bið varð stóra prinsessan á heimilinu 5 ára í dag. Þær systur voru á Eyrarbakka í dag því við Helena fórum í gær á Akureyri þar sem Helena var að byrja í Háskólanum.
 
Amma Snjólaug fór með systurnar í Töfragarðinn á Stokkseyri í tilefni dagsins og skemmtu þær sér allar konunglega. Eva Þórey fékk pakka frá ömmu og afa á Eyrarbakka og í honum var fullt af pæjudóti og þið getið ímyndað ykkur hvað hún varð ánægð með það! Á morgun (26.8) fær hún svo pakka frá mömmu og pabba :o )
 
Ragna Kristín á líka afmæli í dag og má því segja að þetta hafi verið stærðar afmælisdagur á Þykkvaflötinni.
 
Innilega til hamingju með afmælin ykkar, Eva Þórey og Ragna Kristín!!

Nýjar myndir!!!

Jæja þá erum við fjölskyldan í sumarfríi. Jón Óskar er búinn að vera í mánuð í fríi og verður einn mánuð í viðbót því hann átti inni fæðingarorlof sem verður auðvitað að nýta. Svo í miðjan ágúst byrjar hann að vinna í Landsbankanum í Reykjavík. 
 
Eva Þórey fór á miðvikudaginn til afa síns og ömmu í Keflavík og fékk að vera tvær nætur en við förum í bæinn í dag og sækjum hana. Hún er samt alls ekki tilbúin að koma heim því hún vill helst vera í 10 nætur.
 
Í júní fórum við í sumarbústað í tæpa viku í Miðhúsaskóg sem er rétt hjá Úthlíð. Það var ekkert smá notalegt og potturinn mikið notaður, þó sérstaklega af Evu Þóreyju :)
 
Annars erum við lítið búin að gera af okkur í sumar því það er ekkert sumar búið að vera, alltaf rok og rigning.  Síðustu daga erum við búin að vera að vinna í garðinum. Erum að setja niður tré í kringum húsið.
 
Ásdís Karen er ekkert á leiðinni að fara að labba, hún ætlar sér eitthvað að bíða með það.  Henni finnst nóg að taka eitt skref og búið. Vonum samt að það fari að styttast í þetta því hún er farin að slíta svo öllum buxunum sínum. Svo er hún bara svo tilbúin í þetta en það vantar smá þor því ekki vantar viljann.
Í haust ætla ég svo að reyna fyrir mér í skóla en ég er að fara í fjarnám frá Háskólanum á Akureyri í leikskólakennarafræði. Er pínu spennt og pínu kvíðin en þetta hlýtur að reddast allt saman :)
Ég setti hvorki meira né minna en 3 albúm inn svo endilega kíkið á myndirnar og endilega kvittið í gestabókina líka, það er svo gaman að vita hver er að fylgjast með.
 
Kveðja, Helena

1 ár

…síðan yngsti fjölskyldumeðlimurinn kom í heiminn.
 
Reyndar verður nákvæmlega eitt ár kl. 14:58 :o )
 

8. júní 2005, fæðingardeildinni
 

Tekið í maí 2006, í hálfgrænu grasi á lóðinni okkar
 
Til hamingju með daginn elsku Ásdís Karen okkar!
 
Pabbi, mamma og Eva Þórey (aka Stóra Systir)
 

Amma Veiga á afmæli

Elsku amma Veiga!
 
Til hamingju með afmælið þitt.
Hafðu það gott í dag.
Kveðja,
Eva Þórey og Ásdís Karen
 
p.s. það er komið nýtt myndaalbúm