Færslusafn 2005

Baðferð

Systurnar Eva Þórey og Ásdís Karen fóru saman í bað í fyrsta skipti í gær. Það var mikið hlegið og buslað og að sjálfsögðu var myndavélin ekki skammt undan! Látum eina mynd fylgja með en það er aldrei að vita nema við hendum inn fleiri í albúmið… seinna…
 

 
E.S.: Við tókum út fídusinn að geta smellt á hausinn til að skipta um mynd þar sem það hægði gríðarlega á síðunni. Tökum nýjan og endurbættan fídus í notkun von bráðar ;o)

Frjór hugur barnanna

Mæðgurnar Helena og Eva Þórey voru að horfa á útsendingu frá Ingólfstorgi í gær, í tilefni kvennafrídagsins. Snjólaug amma var einhversstaðar í höfuborginni þennan dag og samtal mæðgnanna var á þennan veg:
 
Helena: Heldur þú að amma sé þarna einhversstaðar?
Eva Þórey: Bíddu aðeins…
[Horfir á mannfjöldann á sjónvarpsskjánum drykklanga stund og andvarpar eftir árangurslausa leita að ömmu sinni]
Eva Þórey: Nei, hún hefur örugglega skroppið á klósettið!
 

 
Okkur var boðið í mat á bakkanum sl. laugardag. Við komum frekar seint heim og vegna kulda var ákveðið að leggja bílnum inni í bílskúr. Ásdís Karen sofnaði vitanlega á leiðinni svo að Helena fór fyrst af okkur úr bílnum til að opna inn í hús og kveikja ljós inni í svefnherbergi.
 
Við Eva Þórey vorum næst úr bílnum og fórum beint að leysa af okkur skóna. Eva Þórey tók ekki eftir því að mamma hennar stóð inni í myrkvuðu þvottahúsinu og var líka að leysa af sér skónna. Hún hrökk í kút þegar hún sá móta fyrir mömmu sinni í myrkrinu en var fljót að átta sig og sagði:
 
“Úff, ég hélt að þetta væri ljóti kallinn”!!
 

 
Á sunnudagskveld sátu 3/4 hlutar fjölskyldunnar fyrir framan sjónvarpið. Í myndinni var par að stíga upp í bíl og það sem meira er; konan settist undir stýri.
Í sama mund heyrðist Eva Þórey tauta:
 
“Konan er að keyra af því að maðurinn er búinn að fá sér bjór”!
 
Samt sem áður benti ekkert til þess í myndinni að maðurinn hefði verið að kneyfa öl. Eðlileg ályktun hjá barninu þar sem það tengdi raunveruleikann við atburði í myndinni :o )
 
- jón óskar

Myndir frá Los Angeles

Var loksins að setja inn myndir frá því ég var á ráðstefnunni í Los Angeles í september.
 
Áhugasamir geta skoðað þær hér: Los Angeles
 
Mestmegnis eru þetta myndir af umhverfinu, leiðinlegar myndir en gó ahedd og skoðið…
 
- jón óskar

Veltingur

Ásdís Karen er að verða býsna seig við að velta sér á magann, það tókst reyndar fyrst í gær að hún velti sér til vinstri og svo á magann án hjálpar. Ég reyni að brýna fyrir henni að það sé vænlegast að æfa hægri hliðina líka, reyni að veita henni innsýn í mikilvægi þess að vera jafnvíg á báðar – eins og bestu strækerarnir eru…
 
Hún er að hrista af sér kvefið smá saman eftir að hún jafnaði sig á veikindunum. Fórum með hana á barnaspítalann sl. þriðjudag þar sem tekin var þvagprufa með þvaglegg – læknarnir vilja vera vissir um að það sé ekkert að grassera í litla skinninu. Bráðabrigða rannsókn sýndi að allt sé í góðu en prufan var send í ræktun og fáum við niðurstöður í dag, fimmtudag, eða á morgun.
 
Veisla hjá Eiði Má á laugardaginn þar sem pilturinn heldur upp á eins árs afmæli sitt, veisla hjá okkur annan laugardaginn í röð – sem er vel. Það ku einnig vera hestamannaball á laugardaginn. Skilst að það verði rútu/strætóferðir upp í reiðhöll – rífandi stemming það. Við hjónaleysin förum þó ekki þar sem það stangast á við trúarskoðanir okkar (ha ha ha).
 
Bebba var að tala um Sylvíu Nótt hjá sér um daginn. Ég hafði ekki mikið álit á þessum þáttum þangað til ég horfði á fyrsta þáttinn í nýju seríunni á vefsjónvarpinu hjá SkjáEinum. Stundum vissi ég ekki hvort ég átti að gráta, hlæja eða roðna – þessi óheflaða og fumlausa framkoma sjónvarpskonunnar skilur mann eftir í ringulreið (“ímósjonal rólerkóster”). Hafði sérstaklega gaman af viðtölunum við Steinunni Nylonsokk og Trabant pilta.
 
Liverpool vann Anderlecht á útivelli í gær og hver annar en Djibril Cissé skoraði.
 
“Dear Mr. Benitez (or should I rather say Senjor Benitez?).
Kindly put Mr. Cissé on the front line each time you do a match line-up. He isn´t scoring as many goals when you put him on the right kantur. And please buy Mark (Speedy) Gonzales when the janúar transfer window opens and perhaps a new centre-back?
 
Yours truly,
Jon Oskar”

Nýr vefur, nýtt útlit

Sæl öll og velkomin á nýjan vef fjölskyldunnar.
 
Í sumar lofaði ég endurbótum á vefnum og hef verið að föndra við þetta öðru hvoru á kvöldin, gaf mér vel rúman tíma í verkefnið. Þar sem ég starfa í hugbúnaðargeiranum tel ég þennan langa tíma við persónulega vefsmíði vera augljósan fylgifisk; einsog smiðurinn sem lagar ekki girðinguna heima hjá sér eða píparinn sem er búinn að vera með stíflað klósett í mánuð – þið skiljið hvert ég er að fara.
 
Við vonum öll að ykkur líki breytingarnar á framsetningu og útliti, endilega setjið athugasemdir ykkar í ummælin.
 
Það sem er nýtt á vefnum er:
  • Ummæli (loksins!)
  • Færslusafn. Yfirlit yfir skrif fjölskyldunnar frá upphafi.
  • Tenglar
  • Myndir í haus síðunnar. Hægt er að smella á myndina og þá skiptist hún út fyrir aðra.

 
Annars er allt gott að frétta af okkur. Það er búið að vera brjálað að gera i afmælisstússi hjá Evu Þórey. Hún fór í afmæli til Gillí á föstudaginn og svo fórum við tvö í afmæli til Elvu á laugardaginn. Næsta laugardag er svo eins árs afmæli hjá Eiði Má.
 
Ásdís Karen veiktist snemma í síðustu viku og eftir heimsókn til Helga læknis var hún sett á pensilín. Hún var svo enn með hita á föstudagsmorgun þannig að Helgi vildi endilega að við færum á barnaspítalann til að láta kíkja á litla skinnið. Eftir að hafa skoðað Ásdísi í bak og fyrir og rýnt í prufur sagði læknirinn að sennilega væri þetta veirusýking og að við ættum að hætta með pensilínið. Á laugardaginn var Ásdís með vægan hita sem lækkaði með deginum og í gær, sunnudag, var hún alveg hitalaus. Þetta er því allt á réttri leið :o )
 
Enda þetta með því að pósta mynd af manni helgarinnar, Djibril Cisse, þar sem hann skoraði sigurmark Liverpool manna á móti Blackburn á laugardaginn. Naumt var það en 3 stig í höfn og enginn brotinn sem er jú mjög gott!
 

 
over and át
 
- jón óskar

Það snjóar!!

Við erum ekki alveg að standa okkur hér en það er kominn rúmur mánuður síðan við skrifuðum eitthvað síðast.

Jón Óskar fór til LA og var það alveg svakalega fín vinnuferð en auðvitað var eitthvað verslað í leiðinni og örlítið skoðað.

Eva Þórey er alltaf á leikskólanum og gengur alveg svakalega vel. Var reyndar aðeins heima í síðustu viku því hún hóstaði svo mikið en það kom svo í ljós að kinnholurnar voru stíflaðar en hún er öll að hressast.

Ásdís Karen dafnar vel og er farin að taka upp á ýmsu. Hún er orðin svo forvitin og fylgist vel með öllu sem er að gerast í kringum hana. Ef hún er í fanginu á manni og maður er með eitthvað þá er hún alveg æst í að ná því af manni. Svo um daginn tók hún upp á því að puðra og er að því allan liðlangan daginn þannig að maður er alltaf að skipta um föt á henni. Það styttist líka í að hún fari að snúa sér á magann en það vantar herslumuninn.

Við kíktum aðeins í Keflavík um síðustu helgi en Freyr og Bjarki heldu upp á afmælin sín en Freyr var að ná þeim merka áfanga að verða tvítugur.

Það er mikið af afmælum í kringum okkur á þessum tíma en Sara Margrét átti afmæli þann 1. okt. og Gillí á afmæli í dag og svo á Elva afmæli á morgun og Eiður Már þann 17. Til hamingju með afmælin öll.

Veiga og Ómi (tengdó) eru loksins flutt og húsið alveg svakalega fínt og verður en betra þegar eldhúsinnréttingin er komin upp.

Ásdís Karen vaknaði í morgun með hita. Hún er með mikið kvef og hósta. Þetta kvef hennar ætlar ekki að taka enda. Vonum samt að hún verði fljót að ná sér upp úr þessu.
En segjum þetta gott að sinni.
Endilega kíkið á myndirnar og skrifið í gestabókina.
Helena

Helgin sem leið

…var ljúf. Á föstudagskvöldið komu Heiða, Egill, Aron Elvar og Kristjana Eir og Hjörleifur, Bergþóra og Bryndís Eva til okkar í Básahraunið og við grilluðum öll saman. Það var lengi búið að vera í deiglunni að hittast og grilla en eins og oft vill verða þá dróst þetta á langinn, fólk er svo upptekið yfir sumarið. Heiða og Egill buðu matinn enda átti Egill afmæli þann 22. ágúst og fannst þetta tilvalið tækifæri á að halda litla afmælisveislu – takk fyrir okkur!

Fjölskyldan tók sér göngutúr í gær, sunnudag, enda var veðrið með eindæmum gott um helgina. Rölt var úr Básahrauninu á Egilsbrautina og heim aftur með viðkomu á Setberginu hjá Gesti og Dai. Ásdís Karen svaf allan tímann og gott betur; svaf rétt rúma 4 tíma samtals enda þykir undursamlegt að sofa í tæru og súrefnisríku sveitaloftinu.

Heiðrún, Sara og Sylvía fóru aftur til Ítalíu þriðjudaginn 30. ágúst. Það er heldur betur sjónarsviptir að missa þær eftir eins og hálfs mánaðar dvöl á Íslandi, við vorum orðin vön að hafa þær í kringum okkur. Meiri missirinn var á Þykkvaflötinni hjá Snjólaugu og Kalla, þar sem allt datt í dúnalogn þegar þær stöllur fóru…

Það var planað hjá mömmu og pabba að flytja 1. okt en flutningunum hefur nú verið flýtt um amk eina viku. Seljandinn er að fara erlendis í vinnu og þarf þess vegna að flytja fyrir 1. okt. Það verður asnalegt að fara ekki lengur á Egilsbrautina, húsið sem ég ólst upp í og þar sem mörg partýin voru haldin.

Það styttist óðum í að ég fari til L.A., 5 dagar í dag og ekki laust við það séu komin fiðrildi í magann :o P Þetta er þó bara ein vika sem verður eflaust fljót að líða, það er nú ekki á hverjum degi sem maður fær að fara til Los Angeles… Frétti um daginn að það er slatti af fólki (já, tölvunördar eru líka fólk!!) sem fer á ráðstefnuna á sama flugplani og ég, sem er mjög gott, betra að vita af öðrum sem stefna á sama áfangastað og ég.

- jón óskar

Afmæli í fjölskyldunni

Heimasætan á bænum á afmæli í dag. Eva Þórey (stóra systir) er loksins orðin fjögurra ára. Hún var vakin með kossum og knúsum og brosti sínu blíðasta í gegnum stírurnar meðan við foreldrarnir sungum fyrir hana afmælissönginn.

Morgunmaturinn hjá þessari ungu dömu var kornflex með fjörmjólk og lítil afmæliskaka með einu kerti í eftirrétt.

Á mánudaginn byrjaði Eva Þórey í leikskólanum hér í Þorlákshöfn, Bergheimum, og hefur verið í aðlögun í vikunni sem hefur gengið afar vel. Það var því við hæfi að hún færi með afmælisköku í leikskólann í morgun. Hún heimtaði gómsæta Barbí köku svo að við Helena máttum til með að töfra fram eina slíka með forlátu kökuformi og aðstoð Veigu ömmu.

Það var svo þreytt en ánægð stelpa sem kom heim af leikskólanum með tóman kökudisk og kórónu í tilefni dagsins.

Á laugardaginn verður síðan blásið til afmælisveislu þar sem þessum stórmerka áfanga verður fagnað við hæfi.

Annað ekki síður fréttnæmt er að Ásdís Karen fékk sína fyrstu hárklippingu í dag. Heiðrún, Sara og Sylvía ásamt Snjólaugu ömmu komu í heimsókn og var Heiðrún svo elskuleg að klippa þá stystu. Ásdís Karen stóð sig eins og hetja í klippingunni, spjallaði og brosti allan tímann.

Og síðast, en ALLS ekki síst; Ragna Kristín á líka afmæli í dag og er hún loksins orðin tuttugu vetra gömul. Til hamingju með daginn elsku Ragna Kristín!

Verzló, Hafnardagar og flensa

Sæl öll. Langt liðið frá síðustu skrifum.

Það hefur heilmikið gerst hjá litlu fjölskyldunni síðustu daga og vikur. Um verzlunarmannahelgina flökkuðum við á milli grillveislna og skemmtum okkur heilmikið meðal fjölskyldu og vina. Dagana 4. – 7. ágúst voru haldnir hér í Þorlákshöfn Hafnardagar og er þetta um 2-3 daga dagskrá sem byrjar á fimmtudagskveldi og endar á sunnudegi.
Við Eva Þórey tókum þátt í dorgveiðikeppni á laugardagsmorginum og er skemmst frá að segja að kappið hafi verið meira í pabbanum en dótturinni. Afraksturinn varð forkunnarfagur verðlaunagripur sem Evu Þórey hlotnaðist, bronsverðlaun fyrir mesta aflann :o ).

Fjölskyldufaðirinn er enn í fæðingarorlofi en þó bara 50% vinnu sem kom sér vel í nýliðinni viku. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn varð óvær og fékk hita á þriðjudagskvöld, einungis rétt 2ja mánaða. Okkur var ráðlagt að fara með hana á Barnaspítala Hringsins, sem við gerðum. Þetta voru 3 dagar í röð sem við fórum þrjú en Eva Þórey var undir verndarvæng ömmu Veigu og síðan Eyrarbakka-gengisins á meðan. Sem betur fer amaði ekkert alvarlegt að Ádísis Karen smávægileg pest sem stúlkan nældi sér í. Hins vegar var ferlið afar óþægilegt, bæði fyrir foreldra og sjúkling. Ásdís Karen þurfti að gangast undir rannsóknir og próf svo hægt væri að útiloka alvarleg veikindi, eins og heilahimnubólgu o.s.frv. Við erum afar fegin því að þessu sé lokið því það stingur í hjartað að sjá þetta litla grey þola svo margt.

Vikan framundan er eiginlegt “sumarleyfi” fjölskyldunnar. Við vorum búin að panta sumarbústað (eða Veiga reddaði okkur eiginlega) en vegna veikinda Ásdísar Karenar ákváðum við að skynsamlegast væri að bíða með að fara í bústaðinn fyrr en á mánudag. Þess vegna var ákveðið að Veiga og Ómi færu uppeftir á föstudag og eyddu helginni þar. Eva Þórey tók forskot á sæluna og fékk að fara með Gesti, Dai, og Gillí í gær og eftir því sem fregnir herma er hún afar upptekin við að fara í pottinn og máta föt (kemur á óvart!).

Framundan er svo leikskóli hjá Evu Þórey en hún byrjar þar eftir viku. Það var svo að koma í ljós í vikunni að ég er að fara til Bandaríkjanna 10. september á Microsoft ráðstefnu fyrir forritara. Herlegheitin verða í Los Angeles þannig að þetta verður laaaangt flug en ljósi punkturinn er að hótelið sem ég mun gista á er í hjarta Hollívúdd, je beibí!

e.s.: Nýjar myndir í myndasafni!

Myndir úr skírninni!!

Skírnin gekk svakalega vel enda svaf hún Ásdís Karen þetta allt af sér. Séra Úlfar kom hingað heim og skírði og var það alveg rosalega þægilegt. Gott vera með allt á einum stað, athöfn og veislu.

Um helgina fór Eva Þórey í útilegu í Aratungu með ömmu Veigu og afa Óma. Þau voru náttúrulega svakalega heppin með veður enda sólbrennd eftir ferðina. Eva Þórey skemmti sér vel með þeim Rebekku, Önnu Maríu og Gillí í sólinni. Á laugardeginum fórum þau öll í sund saman og um kvöldið var kveiktur varðeldur og var víst svaka stuð. Eva Þórey var víst ekkert kát með að fara heim eftir útileguna, hún vildi bara vera lengur.

Ásdís Karen heldur áfram að stækka og þyngjast. Hún var í 6 vikna skoðun í síðustu viku og var þá orðin um 5200 gr. og 57,5 cm svo hún er heldur betur að stækka.

Við vorum loksins að setja inn myndirnar úr skírninni!!
Endilega verið ófeimin við að skrifa í gestabókina því það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE