Enn ein jólin sem líta út fyrir að verða rauð. Mikið þætti mér gaman að það yrði nú snjór á aðfangadag; mér (eins og öðrum) þætti ekkert jólalegra en að snjó kyngdi niður, hlussusnjókorn takk fyrir.
- Vind má ekki hreyfa, 2 metrar á sekúndu er algert hámark.
- Snjórinn verður að vera hæfilegur, 10 cm jafnfallin snjór er prýðilegt magn.
- Það má ekki byrja að snjóa fyrr en á aðfangadagsmorgun.
- Að kveldi annars dags jóla, þann 26. desember, má fara rigna – hellirigna.
- Að morgni þess 27. desember verða allar götur/allir vegir að vera auðir og greiðfærir.
Er til of mikils mælst?
Eva Þórey hefur verið eins og engill síðan jólasveinarnir fóru að tínast til byggða, einn af öðrum. Reyndar kraumaði óþekktarpúkinn í henni einn daginn og viti menn, hún fékk bréf frá jólasveininum um nóttina. Innihald bréfsins verður ekki tíundað hér en í megin atriðum var brýnt fyrir henni að óþekk börn fá karteflu (kartafla er skrifað með þessum hætti hér af því mér finnst það fyndið) í skóinn og að jólasveinarnir eru ALLTAF að fylgjast með ;o)
Veikindagrýlan er enn á ferðinni og ákvað af sinni einlægu gæsku að koma við hjá okkur. Eva Þórey byrjaði að kvarta um í hálsinum á sunnudag og á mánudagskveld var sú stutta komin með hita. Það virðist einhvern alltaf koma upp veikindi í fjölskyldunni yfir jólahátíðina, heppin.
Á aðfangadag, jóladag og annan jóladag: S-læg átt og nokkuð hvasst V-lands en annars hægari. Væta sunnan- og V-lands á ðfangadag og jóladag en rigning V-lands annan í jólum, annars úrkomulítið. Fremur hlýtt í veðri.









Ekta jólaveður sem þú lýstir!
En það verður samt líka að vera eins snjór á gamlárs. Það er möst.
)
En hvernig sem viðrar, þá er alltaf sama veðrið á spítalanum, 0 m/sek, þurrt loft og 26 stiga hiti!
Kemur svo snjórinn ekki í janúar, þegar jólin eru búin? Það hentar ágætlega, þá koma jól hjá okkur! Haha
Batakveðjur og knús til stelpnanna!
Bara knús til ykkar!!!
Hilsen, B&H
Þvílík pæling…;)
Já þessi jólasveinar eru fljótir að taka eftir ef að óþekkt er í húsum. Það var líka skilið eftir bréf í glugga á þessum bæ. Ásdís Elva var nú ekki alltof hrifin, en hefur verið góð síðan. Við óskum ykkur góðra bata og já gleðilegra jóla.
kv
Heiða og skvísurnar
Takk fyrir batakveðjurnar. Eva Þórey er orðin hitalaus og er að hressast en Ásdís Karen er að kafna úr kvefi og sefur varla fyrir nefstíflu. Gott að vera búin með þennan pakka þegar jólin bresta á sem er eftir 2 daga
Þá taka aðrir betri pakkar við 
jæja…þið skuldið okkur nú aldeilis jólamyndir…!
Það styttist í jólamyndirnar……..kannski í dag eða á morgun. En annars gleðilegt nýtt ár!!!