Gleðilegan Fullveldisdag!
Enn styttist í jólin og enn fjölgar jólaskrautinu í Básahrauninu. Nú er búið að skreyta húsið að utanverðu, 80 ljósa sería sett á þakskeggið, 120 ljósa mini sería sett á skjólveggina og fallegur jólakrans prýðir framhliðina.
Jólalögunum fjölgar að sama skapi á “playlistanum” og nú er mál að fara huga að jólagjöfum. Á hverju ári gerir maður sömu mistökin, jólagjöfum frestað þangað til á síðustu stundu svo hægt sé að stressa sig aðeins meira yfir þessu ferli.
Ómar Páll litli bróðir hélt upp á 20 ára afmælið sitt sl. laugardag og var það vel. Hann fékk einkanúmerið “KÚTUR” að gjöf frá okkur bræðrunum auk vina. Svipurinn sem kom á dýrið þegar hann sá hvað var í pakkanum var óborganlegur – verst að enginn skuli hafa haft rænu á að taka þetta upp á vídjó.
Við Eva Þórey fórum í Selfossbíó á laugardaginn að sjá “Litla Kjúlla” (Chicken Little). Þetta er hin prýðilegasta mynd sem vel er hægt að gleðjast og klökkna yfir. Tvisvar sinnum var tosað í ermina hjá mér af Evu Þórey þar sem hún vatnaði músum yfir sorglegum atriðum; “Pabbi, þetta er bara svo rosalega sorgleg mynd!”.
Ásdís Karen fór í 5 mánaða skoðun í síðustu viku (2 vikum of seint) og er hún orðin 8 kg og 69,5 cm. Hún fékk ekki sprautu í þetta sinn útaf þessu endalausa kvefi hennar en fær hana vonandi sem fyrst þar sem hún er nú að verða 6 mánaða.
Eftirlætis jólalagið mitt er “Baby Please Come Home” með U2. Hvað er uppáhaldsjólalag yðar? Skrifið vinsamlega í ummælin.
- jón óskar









Uppáhalds jólalagið mitt er ég “ég hlakka svo til” með Svölu Björgvins.
Uppáhalds jólalagið mitt er gleði og friðarjól með Pálma Gunnars eins og reyndar öll platan. Ég og Heiða hlustuðum alltaf á þessa plötu á aðfangadag þegar við vorum yngri.
Sammála síðasta ræðumanni. Gleði og friðarjól.
kv. úr Grindavík.
ég veit nú ekki betur Helena mín en ég hafi líka verið inní því!!!!!