Færslur í December 2005

4 dagar til jóla

Enn ein jólin sem líta út fyrir að verða rauð. Mikið þætti mér gaman að það yrði nú snjór á aðfangadag; mér (eins og öðrum) þætti ekkert jólalegra en að snjó kyngdi niður, hlussusnjókorn takk fyrir.

Ætla samt að setja skilyrði: 
  1. Vind má ekki hreyfa, 2 metrar á sekúndu er algert hámark.
  2. Snjórinn verður að vera hæfilegur, 10 cm jafnfallin snjór er prýðilegt magn.
  3. Það má ekki byrja að snjóa fyrr en á aðfangadagsmorgun.
  4. Að kveldi annars dags jóla, þann 26. desember, má fara rigna – hellirigna.
  5. Að morgni þess 27. desember verða allar götur/allir vegir að vera auðir og greiðfærir.

Er til of mikils mælst?

Eva Þórey hefur verið eins og engill síðan jólasveinarnir fóru að tínast til byggða, einn af öðrum. Reyndar kraumaði óþekktarpúkinn í henni einn daginn og viti menn, hún fékk bréf frá jólasveininum um nóttina. Innihald bréfsins verður ekki tíundað hér en í megin atriðum var brýnt fyrir henni að óþekk börn fá karteflu (kartafla er skrifað með þessum hætti hér af því mér finnst það fyndið) í skóinn og að jólasveinarnir eru ALLTAF að fylgjast með ;o)

Veikindagrýlan er enn á ferðinni og ákvað af sinni einlægu gæsku að koma við hjá okkur. Eva Þórey byrjaði að kvarta um í hálsinum á sunnudag og á mánudagskveld var sú stutta komin með hita. Það virðist einhvern alltaf koma upp veikindi í fjölskyldunni yfir jólahátíðina, heppin.

Verkefninu “Jólagjafir 2005″ fer senn að ljúka, aðeins fáir en léttir verkþættir eftir. Húsið orðið vel skreytt, bæði innan sem utan (sjá eldri færslu með mynd) og jólaandinn sígur hægt en örugglega yfir okkur. Við hlökkum mikið til að halda jólin, því nú í fyrsta skipti verðum við ekki í foreldrahúsum. Litla fjölskyldan heldur nú sín eigin jól og verður það gríðarlegur munur að losna við allt umstang sem hefur einkennt undanfarin jól.
 
Ef vér ritum ekki meira fyrir jól óskum vér yður, lesandi góður, gleðilegra jóla!
 
E.S.: Fyrir áhugasama er hér veðurspáin fyrir helgina:
 
Á Þorláksmessu: V-læg átt, yfirleitt fremur hæg. Slydduél S-lands en slydda eða snjómugga N-lands fram eftir degi. Hiti í ringum frostmark.
Á aðfangadag, jóladag og annan jóladag: S-læg átt og nokkuð hvasst V-lands en annars hægari. Væta sunnan- og V-lands á ðfangadag og jóladag en rigning V-lands annan í jólum, annars úrkomulítið. Fremur hlýtt í veðri.
Spá gerð 20.12.2005 kl. 08:54

Jólahús

 
Svona leit Básahraun 28 út að kveldi þess 3. desember kl. 19:08.
 
Isn´t it pretty?

Jólaklippingin

Ásdís Karen fékk jólaklippinguna sína í gær. Eyrún og Emma Hrönn voru svo elskulegar að kíkja í heimsókn til okkar og skærin voru meðferðis. Satt best að segja þá var kominn tími á að skvísan yrði klippt, hárið var farið að nálgast augun ískyggilega!
 

 
Hún (Ásdís Karen) er ákveðin lítil dama. Ef hana langar í eitthvað teygir hún sig eftir því og stundum fylgja stunur sem leggja enn meiri áherslu á að hana vanti eitthvað sárlega! Máli okkar til stuðnings leggjum við fram sönnunargagn 1A:

 
Amma Veiga og afi Ómi komu frá útlöndum á aðfararnótt mánudagsins; þau fóru til Saint Johns á fimmtudagsmorgun í síðustu viku og vitanlega var heilmikið verslað. Óhætt er að fullyrða að heimasæturnar í Básahrauninu fara síður en svo í jólaköttinn!

Senn koma jólin

Gleðilegan Fullveldisdag!
 
Enn styttist í jólin og enn fjölgar jólaskrautinu í Básahrauninu. Nú er búið að skreyta húsið að utanverðu, 80 ljósa sería sett á þakskeggið, 120 ljósa mini sería sett á skjólveggina og fallegur jólakrans prýðir framhliðina.
 
Jólalögunum fjölgar að sama skapi á “playlistanum” og nú er mál að fara huga að jólagjöfum. Á hverju ári gerir maður sömu mistökin, jólagjöfum frestað þangað til á síðustu stundu svo hægt sé að stressa sig aðeins meira yfir þessu ferli.
 
Ómar Páll litli bróðir hélt upp á 20 ára afmælið sitt sl. laugardag og var það vel. Hann fékk einkanúmerið “KÚTUR” að gjöf frá okkur bræðrunum auk vina. Svipurinn sem kom á dýrið þegar hann sá hvað var í pakkanum var óborganlegur – verst að enginn skuli hafa haft rænu á að taka þetta upp á vídjó.
 
Við Eva Þórey fórum í Selfossbíó á laugardaginn að sjá “Litla Kjúlla” (Chicken Little). Þetta er hin prýðilegasta mynd sem vel er hægt að gleðjast og klökkna yfir. Tvisvar sinnum var tosað í ermina hjá mér af Evu Þórey þar sem hún vatnaði músum yfir sorglegum atriðum; “Pabbi, þetta er bara svo rosalega sorgleg mynd!”.
 
Ásdís Karen fór í 5 mánaða skoðun í síðustu viku (2 vikum of seint) og er hún orðin 8 kg og 69,5 cm. Hún fékk ekki sprautu í þetta sinn útaf þessu endalausa kvefi hennar en fær hana vonandi sem fyrst þar sem hún er nú að verða 6 mánaða.
 
Eftirlætis jólalagið mitt er “Baby Please Come Home” með U2. Hvað er uppáhaldsjólalag yðar? Skrifið vinsamlega í ummælin.
 
- jón óskar
Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE