R og veikindi

Það lítur út fyrir að “eððið” sé á undanhaldi í málfari heimasætunnar. Síðastliðinn laugardag tók hún nefnilega upp á því að segja “ERRRRRRR”. Á meðan nýjabrumið er að fara af þessari ánægjulegu nýjung hennar, er sérstök áhersla lögð á err-in í orðum. Vinsælt er að æfa sig á nafni frænku sinnar: Rögnu Kristínu og verð ég að segja (og um leið að springa úr stolti) að æfingarnar sem ég hef lagt fyrir hana séu loks að skila árangri!
 
“Þú verður að láta tunguna hristast fyrir aftan tennurnar, ekki bíta í hana: ERRRRRR….”
 
Ásdís Karen hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir veikindapúkanum, á laugardag fylltist hún af kvefi og í kjölfarið mældist hún með hita greyið. Þrátt fyrir þetta er hún vígreif og brosir sínu blíðasta, lætur ekki bugast af smá pest. Verra er að hún átti að fara í 5 mánaða skoðun/sprautu í vikunni.
 
Enn styttist í jólin og í gær var gramsað í geymslunni eftir kössunum sem geyma jólaskrautið. Tekin var general prufa á seríu-skreytingar og tveir gluggar skreyttir af kostgæfni. Vitaskuld var svindlað örlítið í leiðinni og 2-3 jólalög spiluð úr tölvunni - þið segið engum frá! Næstu helgi er svo planað að skreyta meira, henda jafnvel seríum á pallinn og húsið því næstkomandi sunnudag er jú fyrsti í aðventu (jafnvel maður spili 4-5 jólalög…).
 
 
Grétar Ingi á afmæli dag:
Innilega til hamingju með daginn litli strákur!
 
 
- jón óskar
 
ps. Liverpool vann 3-0 um helgina.

3 athugasemdir við “R og veikindi”

  1. Þetta nafn er nú heldur ekkert smá hvetjandi, gefandi og fallegt…;) æfingar hvað sko..! En til hamingju Grétar…og ómar.

  2. Bebba says:

    En Deððekuðinn? hvar verður þá um hann?!!? ;)
    Knús til ykkar! Alltaf gaman að lesa færslurnar! ;)

  3. Helena says:

    Dðekuðinn hann lifir í minningunni og gleymist eflaust seint :)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE