Afmælismánuðurinn mikli

Ég var að taka saman í lítinn MS Access gagnagrunn afmælisdaga í fjölskyldunni, svona til að eiga yfirlit yfir þetta á einum stað. Dreifingin er nokkuð góð á mánuði ársins en mars og nóvember verma efsta sætið saman.
 
Topp listinn
  1. mars og nóvember (7)
  2. október (6)
  3. apríl (4)
  4. janúar, maí og ágúst (3)
  5. júní og júlí (2)
  6. febrúar, september og desember (1)
Fyrir utan undirritaðann eiga 6 manns afmæli í nóvember og er þeim hér með óskað innilega til hamingju með afmælið (hvort sem það er liðið eða á næstunni):
  • Kjartan – 6. nóvember
  • Kolla – 10. nóvember
  • Afi Kalli – 12. nóvember
  • Afi Jói – 20. nóvember
  • Grétar Ingi – 21. nóvember
  • Ómar Páll – 26. nóvember

Við lögðum land undir fjögur hjól á laugardaginn og rúntuðum til Keflavíkur. Reykjanesbrautin var tekin á 100 km/h með krúskontrólinu sem ég fæ ekki nóg af, meira krús, meira krús. Litla fjölskyldan að Heiðarbóli, Hjörleifur, Bebba og Bryndís Eva tóku á móti okkur með virktum og Sóley leit inn en því miður var Jói enn á sjó þannig við misstum af honum. Það er magnað hversu tíminn flýgur þegar heimsóknir eru iðkaðar því áður en við vissum af var tími til kominn að halda heim á leið og okkur fannst við vera nýkomin.
 
Helgin var að öðru leyti tíðindalítil. Við Eva Þórey hjálpuðum til í Mánanum á föstudagskveld, á laugardagskvöldið gerðum við tilraun til að horfa á myndina Surviving Christmas með Ben Affleck í aðalhlutverki. Ég hef nú aldrei haft mikið álit á Bennanum og ekki jókst það við að horfa á þessa slöku ræmu (eða þessar 40 mínútur sem við horfðum á). 40 mínútur af lífi okkar og 500 krónur horfnar… forever. Í bríaríi rambaði ég á Police Academy á Skjánum og var horft á hana, enda klassík þar á ferð.
 
Sunnudagsrúnturinn að þessu sinni var helgaður Bónus í Hveragerði og innkaup fyrir komandi viku gerð af nánast vélrænum hætti: mjólk, grænmeti, brauð, bleyjur og aðrar nauðsynjar tíndar í körfuna á mettíma.
 
Í gærkveldi horfðum við hjónleysin svo á Strákarnir Okkar, fín mynd með óhefluðu málfari, stöku nekt og endi sem kom á óvart, þ.e.a.s. myndin endaði svo snögglega að okkur nánast brá. Hvet alla sem sjá þessa mynd að veita atriðunum á “Raufarhöfn” sérstaka athygli – í ljósi þess að “Raufarhöfn” er í raun Þorlákshöfn (City of Ölfus).
 
bestu kveðjur,
Jón Óskar

2 athugasemdir við “Afmælismánuðurinn mikli”

  1. Kjartan Fr. says:

    Takk fyrir það og sömuleiðis til hamingju með þinn dag.

  2. Bebba says:

    Maí er kannski ekki vinsælasti mánuðurinn, en samt sem áður mjög góður með fæðingardegi merkilegs fólks eins og mér sjálfri, Bryndísi Evu og að sjálfsögðu forsetanum!! ;)
    En það var ótrúlega gaman að sjá ykkur um helgina! Þá er boltinn kominn til okkar! ;)

Bæta við athugasemd

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE