Færslur í November 2005

R og veikindi

Það lítur út fyrir að “eððið” sé á undanhaldi í málfari heimasætunnar. Síðastliðinn laugardag tók hún nefnilega upp á því að segja “ERRRRRRR”. Á meðan nýjabrumið er að fara af þessari ánægjulegu nýjung hennar, er sérstök áhersla lögð á err-in í orðum. Vinsælt er að æfa sig á nafni frænku sinnar: Rögnu Kristínu og verð ég að segja (og um leið að springa úr stolti) að æfingarnar sem ég hef lagt fyrir hana séu loks að skila árangri!
 
“Þú verður að láta tunguna hristast fyrir aftan tennurnar, ekki bíta í hana: ERRRRRR….”
 
Ásdís Karen hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir veikindapúkanum, á laugardag fylltist hún af kvefi og í kjölfarið mældist hún með hita greyið. Þrátt fyrir þetta er hún vígreif og brosir sínu blíðasta, lætur ekki bugast af smá pest. Verra er að hún átti að fara í 5 mánaða skoðun/sprautu í vikunni.
 
Enn styttist í jólin og í gær var gramsað í geymslunni eftir kössunum sem geyma jólaskrautið. Tekin var general prufa á seríu-skreytingar og tveir gluggar skreyttir af kostgæfni. Vitaskuld var svindlað örlítið í leiðinni og 2-3 jólalög spiluð úr tölvunni - þið segið engum frá! Næstu helgi er svo planað að skreyta meira, henda jafnvel seríum á pallinn og húsið því næstkomandi sunnudag er jú fyrsti í aðventu (jafnvel maður spili 4-5 jólalög…).
 
 
Grétar Ingi á afmæli dag:
Innilega til hamingju með daginn litli strákur!
 
 
- jón óskar
 
ps. Liverpool vann 3-0 um helgina.

Nýjar myndir – nýjar myndir

Ég endurtek, NÝJAR MYNDIR!
 
Enda var mál til komið að henda inn myndum á þetta blessaða albúm okkar.

 
Ragna Kristín er að koma heim til íslands á morgun eftir 2 mánaða útlegð í Liverpool borg. Reyndar lendir hún seint þannig við hittum hana ekki fyrr en á föstudag. Vertu velkomin heim Ragna Kristín, ef þú finnur skrýtna lykt í herberginu þínu er kæfan sem ég geymi undir rúminu þínu sennilega farin að skemmast. Dónt vörrí, ég sæki hana á laugardag – sunnudag.
 
kv.
jón óskar

Afmælismánuðurinn mikli

Ég var að taka saman í lítinn MS Access gagnagrunn afmælisdaga í fjölskyldunni, svona til að eiga yfirlit yfir þetta á einum stað. Dreifingin er nokkuð góð á mánuði ársins en mars og nóvember verma efsta sætið saman.
 
Topp listinn
  1. mars og nóvember (7)
  2. október (6)
  3. apríl (4)
  4. janúar, maí og ágúst (3)
  5. júní og júlí (2)
  6. febrúar, september og desember (1)
Fyrir utan undirritaðann eiga 6 manns afmæli í nóvember og er þeim hér með óskað innilega til hamingju með afmælið (hvort sem það er liðið eða á næstunni):
  • Kjartan – 6. nóvember
  • Kolla – 10. nóvember
  • Afi Kalli – 12. nóvember
  • Afi Jói – 20. nóvember
  • Grétar Ingi – 21. nóvember
  • Ómar Páll – 26. nóvember

Við lögðum land undir fjögur hjól á laugardaginn og rúntuðum til Keflavíkur. Reykjanesbrautin var tekin á 100 km/h með krúskontrólinu sem ég fæ ekki nóg af, meira krús, meira krús. Litla fjölskyldan að Heiðarbóli, Hjörleifur, Bebba og Bryndís Eva tóku á móti okkur með virktum og Sóley leit inn en því miður var Jói enn á sjó þannig við misstum af honum. Það er magnað hversu tíminn flýgur þegar heimsóknir eru iðkaðar því áður en við vissum af var tími til kominn að halda heim á leið og okkur fannst við vera nýkomin.
 
Helgin var að öðru leyti tíðindalítil. Við Eva Þórey hjálpuðum til í Mánanum á föstudagskveld, á laugardagskvöldið gerðum við tilraun til að horfa á myndina Surviving Christmas með Ben Affleck í aðalhlutverki. Ég hef nú aldrei haft mikið álit á Bennanum og ekki jókst það við að horfa á þessa slöku ræmu (eða þessar 40 mínútur sem við horfðum á). 40 mínútur af lífi okkar og 500 krónur horfnar… forever. Í bríaríi rambaði ég á Police Academy á Skjánum og var horft á hana, enda klassík þar á ferð.
 
Sunnudagsrúnturinn að þessu sinni var helgaður Bónus í Hveragerði og innkaup fyrir komandi viku gerð af nánast vélrænum hætti: mjólk, grænmeti, brauð, bleyjur og aðrar nauðsynjar tíndar í körfuna á mettíma.
 
Í gærkveldi horfðum við hjónleysin svo á Strákarnir Okkar, fín mynd með óhefluðu málfari, stöku nekt og endi sem kom á óvart, þ.e.a.s. myndin endaði svo snögglega að okkur nánast brá. Hvet alla sem sjá þessa mynd að veita atriðunum á “Raufarhöfn” sérstaka athygli – í ljósi þess að “Raufarhöfn” er í raun Þorlákshöfn (City of Ölfus).
 
bestu kveðjur,
Jón Óskar

Pabbi á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið elsku pabbi okkar.
 
Eva Þórey er sko löngu búin að ákveða hvernig köku pabbi sinn á að fá en það er auðvitað Liverpool kaka. Það kemur ekkert annað til greina svo ég verð að reyna töfra eitthvað fram, sjáum til hvernig það gengur.
Kveðja, Helena, Eva Þórey og Ásdís Karen

Bréf til Arons Elvars

Svo skrifar heimasætan:
 
“Aron Elvar, ég er á nýjum leikskóla og þú líka, er búin að fá nýjan bíl og líka með pakka. Ásdís Karen fæddist í júní og svo bara…. líka Kristjana Eir fæddist í júní (leiðrétting ritara: Kristjana Eir fæddist í Apríl.).
 
Kveðja,
Þín Eva Þórey”
Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE