Færslur í October 2005

Er einhver að fylgjast með?

Okkur langar til að gera litla óformlega könnun á því hvort einhver sé að fylgjast með vefnum okkar. Við yrðum AFAR þakklát ef þú kvittaðir í ummælin fyrir þessa færslu þegar þú lest hana!
 
Með fyrirfram þökk,
fjölskyldan Básahrauni 28

Baðferð

Systurnar Eva Þórey og Ásdís Karen fóru saman í bað í fyrsta skipti í gær. Það var mikið hlegið og buslað og að sjálfsögðu var myndavélin ekki skammt undan! Látum eina mynd fylgja með en það er aldrei að vita nema við hendum inn fleiri í albúmið… seinna…
 

 
E.S.: Við tókum út fídusinn að geta smellt á hausinn til að skipta um mynd þar sem það hægði gríðarlega á síðunni. Tökum nýjan og endurbættan fídus í notkun von bráðar ;o)

Frjór hugur barnanna

Mæðgurnar Helena og Eva Þórey voru að horfa á útsendingu frá Ingólfstorgi í gær, í tilefni kvennafrídagsins. Snjólaug amma var einhversstaðar í höfuborginni þennan dag og samtal mæðgnanna var á þennan veg:
 
Helena: Heldur þú að amma sé þarna einhversstaðar?
Eva Þórey: Bíddu aðeins…
[Horfir á mannfjöldann á sjónvarpsskjánum drykklanga stund og andvarpar eftir árangurslausa leita að ömmu sinni]
Eva Þórey: Nei, hún hefur örugglega skroppið á klósettið!
 

 
Okkur var boðið í mat á bakkanum sl. laugardag. Við komum frekar seint heim og vegna kulda var ákveðið að leggja bílnum inni í bílskúr. Ásdís Karen sofnaði vitanlega á leiðinni svo að Helena fór fyrst af okkur úr bílnum til að opna inn í hús og kveikja ljós inni í svefnherbergi.
 
Við Eva Þórey vorum næst úr bílnum og fórum beint að leysa af okkur skóna. Eva Þórey tók ekki eftir því að mamma hennar stóð inni í myrkvuðu þvottahúsinu og var líka að leysa af sér skónna. Hún hrökk í kút þegar hún sá móta fyrir mömmu sinni í myrkrinu en var fljót að átta sig og sagði:
 
“Úff, ég hélt að þetta væri ljóti kallinn”!!
 

 
Á sunnudagskveld sátu 3/4 hlutar fjölskyldunnar fyrir framan sjónvarpið. Í myndinni var par að stíga upp í bíl og það sem meira er; konan settist undir stýri.
Í sama mund heyrðist Eva Þórey tauta:
 
“Konan er að keyra af því að maðurinn er búinn að fá sér bjór”!
 
Samt sem áður benti ekkert til þess í myndinni að maðurinn hefði verið að kneyfa öl. Eðlileg ályktun hjá barninu þar sem það tengdi raunveruleikann við atburði í myndinni :o )
 
- jón óskar

Myndir frá Los Angeles

Var loksins að setja inn myndir frá því ég var á ráðstefnunni í Los Angeles í september.
 
Áhugasamir geta skoðað þær hér: Los Angeles
 
Mestmegnis eru þetta myndir af umhverfinu, leiðinlegar myndir en gó ahedd og skoðið…
 
- jón óskar

Veltingur

Ásdís Karen er að verða býsna seig við að velta sér á magann, það tókst reyndar fyrst í gær að hún velti sér til vinstri og svo á magann án hjálpar. Ég reyni að brýna fyrir henni að það sé vænlegast að æfa hægri hliðina líka, reyni að veita henni innsýn í mikilvægi þess að vera jafnvíg á báðar – eins og bestu strækerarnir eru…
 
Hún er að hrista af sér kvefið smá saman eftir að hún jafnaði sig á veikindunum. Fórum með hana á barnaspítalann sl. þriðjudag þar sem tekin var þvagprufa með þvaglegg – læknarnir vilja vera vissir um að það sé ekkert að grassera í litla skinninu. Bráðabrigða rannsókn sýndi að allt sé í góðu en prufan var send í ræktun og fáum við niðurstöður í dag, fimmtudag, eða á morgun.
 
Veisla hjá Eiði Má á laugardaginn þar sem pilturinn heldur upp á eins árs afmæli sitt, veisla hjá okkur annan laugardaginn í röð – sem er vel. Það ku einnig vera hestamannaball á laugardaginn. Skilst að það verði rútu/strætóferðir upp í reiðhöll – rífandi stemming það. Við hjónaleysin förum þó ekki þar sem það stangast á við trúarskoðanir okkar (ha ha ha).
 
Bebba var að tala um Sylvíu Nótt hjá sér um daginn. Ég hafði ekki mikið álit á þessum þáttum þangað til ég horfði á fyrsta þáttinn í nýju seríunni á vefsjónvarpinu hjá SkjáEinum. Stundum vissi ég ekki hvort ég átti að gráta, hlæja eða roðna – þessi óheflaða og fumlausa framkoma sjónvarpskonunnar skilur mann eftir í ringulreið (“ímósjonal rólerkóster”). Hafði sérstaklega gaman af viðtölunum við Steinunni Nylonsokk og Trabant pilta.
 
Liverpool vann Anderlecht á útivelli í gær og hver annar en Djibril Cissé skoraði.
 
“Dear Mr. Benitez (or should I rather say Senjor Benitez?).
Kindly put Mr. Cissé on the front line each time you do a match line-up. He isn´t scoring as many goals when you put him on the right kantur. And please buy Mark (Speedy) Gonzales when the janúar transfer window opens and perhaps a new centre-back?
 
Yours truly,
Jon Oskar”

Nýr vefur, nýtt útlit

Sæl öll og velkomin á nýjan vef fjölskyldunnar.
 
Í sumar lofaði ég endurbótum á vefnum og hef verið að föndra við þetta öðru hvoru á kvöldin, gaf mér vel rúman tíma í verkefnið. Þar sem ég starfa í hugbúnaðargeiranum tel ég þennan langa tíma við persónulega vefsmíði vera augljósan fylgifisk; einsog smiðurinn sem lagar ekki girðinguna heima hjá sér eða píparinn sem er búinn að vera með stíflað klósett í mánuð – þið skiljið hvert ég er að fara.
 
Við vonum öll að ykkur líki breytingarnar á framsetningu og útliti, endilega setjið athugasemdir ykkar í ummælin.
 
Það sem er nýtt á vefnum er:
  • Ummæli (loksins!)
  • Færslusafn. Yfirlit yfir skrif fjölskyldunnar frá upphafi.
  • Tenglar
  • Myndir í haus síðunnar. Hægt er að smella á myndina og þá skiptist hún út fyrir aðra.

 
Annars er allt gott að frétta af okkur. Það er búið að vera brjálað að gera i afmælisstússi hjá Evu Þórey. Hún fór í afmæli til Gillí á föstudaginn og svo fórum við tvö í afmæli til Elvu á laugardaginn. Næsta laugardag er svo eins árs afmæli hjá Eiði Má.
 
Ásdís Karen veiktist snemma í síðustu viku og eftir heimsókn til Helga læknis var hún sett á pensilín. Hún var svo enn með hita á föstudagsmorgun þannig að Helgi vildi endilega að við færum á barnaspítalann til að láta kíkja á litla skinnið. Eftir að hafa skoðað Ásdísi í bak og fyrir og rýnt í prufur sagði læknirinn að sennilega væri þetta veirusýking og að við ættum að hætta með pensilínið. Á laugardaginn var Ásdís með vægan hita sem lækkaði með deginum og í gær, sunnudag, var hún alveg hitalaus. Þetta er því allt á réttri leið :o )
 
Enda þetta með því að pósta mynd af manni helgarinnar, Djibril Cisse, þar sem hann skoraði sigurmark Liverpool manna á móti Blackburn á laugardaginn. Naumt var það en 3 stig í höfn og enginn brotinn sem er jú mjög gott!
 

 
over and át
 
- jón óskar

Það snjóar!!

Við erum ekki alveg að standa okkur hér en það er kominn rúmur mánuður síðan við skrifuðum eitthvað síðast.

Jón Óskar fór til LA og var það alveg svakalega fín vinnuferð en auðvitað var eitthvað verslað í leiðinni og örlítið skoðað.

Eva Þórey er alltaf á leikskólanum og gengur alveg svakalega vel. Var reyndar aðeins heima í síðustu viku því hún hóstaði svo mikið en það kom svo í ljós að kinnholurnar voru stíflaðar en hún er öll að hressast.

Ásdís Karen dafnar vel og er farin að taka upp á ýmsu. Hún er orðin svo forvitin og fylgist vel með öllu sem er að gerast í kringum hana. Ef hún er í fanginu á manni og maður er með eitthvað þá er hún alveg æst í að ná því af manni. Svo um daginn tók hún upp á því að puðra og er að því allan liðlangan daginn þannig að maður er alltaf að skipta um föt á henni. Það styttist líka í að hún fari að snúa sér á magann en það vantar herslumuninn.

Við kíktum aðeins í Keflavík um síðustu helgi en Freyr og Bjarki heldu upp á afmælin sín en Freyr var að ná þeim merka áfanga að verða tvítugur.

Það er mikið af afmælum í kringum okkur á þessum tíma en Sara Margrét átti afmæli þann 1. okt. og Gillí á afmæli í dag og svo á Elva afmæli á morgun og Eiður Már þann 17. Til hamingju með afmælin öll.

Veiga og Ómi (tengdó) eru loksins flutt og húsið alveg svakalega fínt og verður en betra þegar eldhúsinnréttingin er komin upp.

Ásdís Karen vaknaði í morgun með hita. Hún er með mikið kvef og hósta. Þetta kvef hennar ætlar ekki að taka enda. Vonum samt að hún verði fljót að ná sér upp úr þessu.
En segjum þetta gott að sinni.
Endilega kíkið á myndirnar og skrifið í gestabókina.
Helena

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE