Færslur í July 2005

Myndir úr skírninni!!

Skírnin gekk svakalega vel enda svaf hún Ásdís Karen þetta allt af sér. Séra Úlfar kom hingað heim og skírði og var það alveg rosalega þægilegt. Gott vera með allt á einum stað, athöfn og veislu.

Um helgina fór Eva Þórey í útilegu í Aratungu með ömmu Veigu og afa Óma. Þau voru náttúrulega svakalega heppin með veður enda sólbrennd eftir ferðina. Eva Þórey skemmti sér vel með þeim Rebekku, Önnu Maríu og Gillí í sólinni. Á laugardeginum fórum þau öll í sund saman og um kvöldið var kveiktur varðeldur og var víst svaka stuð. Eva Þórey var víst ekkert kát með að fara heim eftir útileguna, hún vildi bara vera lengur.

Ásdís Karen heldur áfram að stækka og þyngjast. Hún var í 6 vikna skoðun í síðustu viku og var þá orðin um 5200 gr. og 57,5 cm svo hún er heldur betur að stækka.

Við vorum loksins að setja inn myndirnar úr skírninni!!
Endilega verið ófeimin við að skrifa í gestabókina því það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.

Sú stutta komin með nafn

Ásdís Karen Jónsdóttir

Hún var skírð í dag, laugardaginn 16.júlí, kl. 14:00 af séra Úlfari Guðmundssyni.

Öllum heilsast vel, soldið södd en alveg í skýjunum :o )

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE