Færslur í June 2005

Síðustu fréttir

Jæja þá er litla prinsessan orðin 16 daga gömul og allt gengur vel. Hún þyngist vel og er voða róleg, ólíkt því sem við eigum að venjast því Eva Þórey var algjör andstæða við hana í þeim efnum. Hún sefur nánast alla nóttina, sem er algjör draumur (spurning bara hvað hann varir lengi).

Eva Þórey er svakalega dugleg enda má hún ekki heyra smá múkk frá þeirri litlu þá er hún rokin af stað til að athuga með hana. Hún hjálpar líka mikið til við að skipta á henni og setja hana í önnur föt. Hún er líka orðin svo stór að hún heldur að hún megi allt. Daginn eftir að við komum heim af sjúkrahúsinu þá spurði hún pabba sinn hvort hún mætti ekki fara út og pabbi hennar sagði það vera í lagi og þá spurði hún hvort hún mætti þá ekki hlaupa eitthvað í burtu þar sem hún væri orðin stóra systir :o )

Í gærkvöldi þegar hún var komin upp í rúm leit ég inn til hennar. Hún var þá að gefa dúkkunni sinni brjóst og gat því ekki farið að sofa strax. Ég var varla stigin inn í herbergið þegar hún reif dúkkuna frá og þóttist ekkert hafa verið að gera, alveg ótrúlegt hverju þessi börn taka upp á!

Við höfum ákveðið að hætta að skrifa í nafni Evu Þóreyjar eftir að fjölskyldan stækkaði og stefnan er að koma með nýja síðu tileinkaðri allri fjölskyldunni – vonandi sem fyrst!

kv.
Helena

Myndir, myndir, myndir

Vorum að setja inn nýtt albúm og bæta við albúmið “Pallasmíði” þar sem verklok á nýja sólpallinum nálgast óðfluga.

Endilega skoðið!

kv.
Eva Þórey

Ég á litla systur!

Sæl öll og afsakið hversu langt er síðan ég skrifaði síðast. Nú er ég nefnilega búin að eignast litla systur, alveg glænýja! Hún fæddist miðvikudaginn 8. júní klukkan 14:58. Hún vó 3.800 grömm (15 merkur) og var 50,5 cm.

Þegar ég fæddist var ég nokkrum grömmum léttari en einum og hálfum centimetra lengri enda er ég STÓRA systir!!

Það eru allir við hestaheilsu, litla systir drekkur vel, mamma er svona kortér í að jafna sig og bæði hún og pabbi eru að springa úr monti að eiga tvær litlar stelpur (eða eiginlega bara eina litla því munið þið: ég er STÓRA systir!).

Mamma og litla systir fengu að fara tæpum sólarhring eftir fæðingu enda vorum við pabbi alveg tilbúin að annast þær. Við erum svo öll að fara til Reykjavíkur á morgun (þann 13. júní) þar sem litla systir verður skoðuð og síðan formlega útskrifuð!

Knús og kveðjur þangað til næst,
Eva Þórey

EvaÞóreyska

Nokkur hugtök úr Orðabók Evu Þóreyjar:

Reykjari
- Sígaretta

Idol snakk/Idol matur
- Doritos snakk

Dúkað mál
- Bókað mál

Birgittu nammi
- Rís, súkkulaði

Þorlákshöfn, Keflavík og Eyrarbakki
- Húsin þar sem afi og amma eiga heima

Jónsa nammi
- Draumur, súkkulaði (góður draumur maður)

Neglari
- Hamar

Að byssa
- Að skjóta

Skjótumynd
- Kvikmynd sem bönnuð er börnum

Kleisí Plasthaus
- Crazy Bastard (lagið með Audda, Sveppa og Pétri + Quarashi)

Hálmíling
- Hárnæring

Umþvottavél
- Uppþvottavél

Nýjar myndir – tvö albúm!

Það er mikið að gerast hjá mér þessa dagana. Um síðustu helgi fór ég í afmæli hjá ömmu Veigu og útskrift hjá Grétari Inga frænda en hann var að útskrifast sem stúdent úr FSU. Á Sunnudaginn fór ég svo á Bakkann með ömmu Snjólaugu og hitti þar Bylgju, Ísabellu og Olav en þau voru þar í heimsókn. Mamma kom svo líka en pabbi er búinn að vera á kafi í pallinum okkar eins og sést á nýju myndunum sem við settum inn. Við mamma höfum varla talað við hann í þessari viku því hann er búinn að vera smíða svo mikið. Afi Kalli er búinn að vera hér meira og minna til að hjálpa til enda værum við ekki kominn svona vel á veg án hans.

Á morgun fer ég svo loksins á Kalla á þakinu með afa Jóa, ömmu Sóley, Bjarka frænda og Aroni Elvari frænda. Ég hlakka alveg rosalega til enda er ég búin að bíða spennt eftir þessu í marga daga.
Á sunnudaginn ætla svo Hjörleifur frændi minn og Bergþóra að skíra litlu dúlluna sína en við verðum bara að sjá til hvort við getum mætt því nú styttist óðum í litla barnið okkar.
En fínt af mér í bili,
Kveðja, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE