Færslur í April 2005

Hætt í leikskólanum

Í gær var síðasti dagurinn minn á leikskólanum Heiðarborg…uhhhu. Við mamma ætlum að vera tvær heima að dúlla okkur þangað til litla barnið kemur. Við getum samt ekki alveg sleppt leikskólanum svona auðveldlega svo við ætlum að kíkja í heimsókn í næstu viku og kveðja almennilega. Mömmu fannst hálf leiðinlegt að vera taka mig af leikskólanum núna þar sem ég á svo góða vinkonu þar hana Ásdísi Elvu en Ásdís er hvort eð er að fara að hætta líka svo þetta er allt í lagi.

Síðustu dagar og nætur hafa verið svolítið fjörugar hjá okkur. Nú eru flugurnar farnar að láta sjá sig og líka randaflugurnar og ég er svona svakalega hrædd við þær. Eina nóttina vaknaði ég upp alveg brjáluð og sagði að það væri fluga í rúminu og mamma og pabbi leituðu en það var engin fluga. Ég var alveg ísköld og skalf af hræðslu og var á vaktinni eftir þetta í um 2 tíma. Ég vildi varla leggjast í rúmið aftur og alveg ríghélt í pabba og mömmu til skiptis. En ég sofnaði loksins en hef verið með varann á síðan. Mamma og pabbi eru að vona að ég komist fljótt yfir þessa hræðslu.

Heyrumst síðar, Eva Þórey

Aron Elvar eignast litla systur

Í gær þann 14. apríl eignaðist Heiða frænka litla stelpu. Innilega til hamingju með hana elsku Heiða, Egill og Aron Elvar.
Í dag var hún svo skírð og heitir hún Kristjana Eir og við fórum og kíktum á þau þegar þau komu heim af spítalanum. Mér finnst hún algjört krútt og fékk ég meira að segja að halda á henni en ég vildi ekki halda á henni lengi því hún fór að gráta og þá fannst mér tímabært að skila henni.

Við settum inn myndir af henni í myndasafnið mitt.
Kveðja Eva Þórey

3 NÝ MYNDAALBÚM

Þá er loksins búið að setja nýjar myndir inn og nú var það tekið með trompi því við settum heil 3 albúm inn. Pabbi er líka búinn að laga myndasíðuna þannig að nýjustu albúmin koma nú efst. Endilega kíkið.

Gestur frændi minn átti afmæli í síðustu viku þann 7. apríl, til hamingju með afmælið Gestur.

Við heyrumst síðar, ykkar Eva Þórey