Færslur í March 2005

styttist í páskafrí

Í gær þann 20. mars átti hún Heiða frænka afmæli, til hamingju með afmælið Heiða. Við erum nú ekki enn farin að heimsækja þau í nýju íbúðina þeirra en það styttist alltaf í það.

Við fengum heimsókn í gær en Stella, Berglind, Gúndi og Hákon Fenrir komu til okkar. Ég og Hákon lékum okkur allan tíman saman enda sást það á herberginu mínu þegar þau fóru því það var eins og það hafi verið varpað sprengju þar inni en mömmu grunar að mesta draslið hafi verið eftir mig sjálfa.

Nú styttist óðum í páskafríið og hlakka ég mikið til, aðallega samt að fá páskaeggið mitt. Við fjölskyldan ætlum bara að vera heima yfir páskana og hafa það gott. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur undanfarið að það verður gott að fá smá frí.

kveðja, Eva Þórey

Þá erum við flutt!

Jæja þá erum við flutt til Þorlákshafnar og er ég ekkert smá kát með það.

Við keyrum samt til Reykjavíkur til að fara í leikskólann og pabbi fer í vinnuna sína. Ég er nú ekkert svakalega sátt við það því mér finnst að þar sem ég er flutt þá eigi ég að byrja í nýjum leikskóla líka. Okkur líður svakalega vel í nýja húsinu en ég er eiginlega ánægðust með baðið og vil ég helst alltaf vera í baði.

Til hamingju með afmælið á þriðjudaginn elsku mamma mín. Mamma átti afmæli á þriðjudaginn og komu nokkrir úr fjölskyldunni í heimsókn um kvöldið ( ég var að vísu búin að bjóða allri deildinni minni og konunum líka en mömmu leist ekkert á þá hugmynd). Erla langamma, eða langa eins og ég vil kalla hana, kom með ömmu og afa en ég hafði ekki séð hana í langan tíma. Það var eiginlega eins og ég ætti afmæli þennan daginn því ég fékk 2 pakka, amma Veiga gaf mér pæjuveski og Ragna Kristín gaf mér pæjubol svo ég verð alveg svakaleg skvísa :)

Annað kvöld fer ég svo í pössun hjá ömmu og afa á Eyrarbakka og verð þar yfir nótt því mamma og pabbi eru að fara á árshátíð hjá leikskólanum.

Jæja bið að heilsa í bili
Ykkar Eva Þórey