Mikið í gangi hjá mér núna og þess vegna lítið skrifað. Um síðustu helgi fór ég og mamma í bíó á nýju Bangsímonmyndina. Mér fannst mjög gaman eða eins og ég orðaði það við pabba “alveg ljómandi fínt”.
Í gær var ömmu og afadagur í leikskólanum sem var mjög spennandi. Mamma var búin að segja mér um morguninn að það myndi engin af mínum ömmum og öfum koma því þau búa svo langt í burtu. Ég var mjög leið yfir því. Svo þegar ömmu og afadagurinn byrjaði birtist amma Snjólaug allt í einu og var ég ekkert smá hissa. Hún stoppaði hjá mér í dágóða stund og ég sýndi henni leikskólann minn.
Á morgun er svo stór dagur hjá okkur fjölskyldunni því við fáum líklega húsið okkar þá. En það er ekki það eina því ég ætla að fara að sjá Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu með mömmu, Heiðu og Aroni Elvari.
Svo það verður nóg að gera hjá okkur á morgun eins og næstu daga. Síðan stefnum við að því að flytja um næstu helgi.
Bið að heilsa að sinni,
Eva Þórey









Nýlegar athugasemdir