Færslur í January 2005

Hann á afmæli í dag…

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í DAG ELSKU AFI ÓMI!! Jebb, hann Ómi afi minn á afmæli í dag og eru honum sendar hér með innilegar hamingjuóskir! Ég mun sennilega afhenda honum knús og kossa í kvöld því hann bauð okkur fjölskyldunni til Þorlákshafnar í mat í tilefni dagsins.

óver and át,
Eva Þórey

Gleðilegt Nýtt Ár!!!

Þá eru jólin búin :o (

Litla fjölskyldan hafði það býsna gott yfir hátíðarnar þó það væri ekki mikið frí frá vinnu. Við fórum á Þorláksmessu til Þorlákshafnar og vorum þar á aðfangadag. Á aðfangadagsmorgun fékk ég eins og vanalega í skóinn frá jólasveininum og að þessu sinni gaf hann mér Nylon geisladiskinn í skóinn! Jíha og jibbí jei (næstum seytjándi júní!!). Um kvöldið fékk ég alveg svakalega mikið af pökkum sem í leyndust bæði gull og gersemar – dúkka, Viddi úr Toy Story, dúkkuvagn, DVD Kids, föt, Birgittu dúkku og fleira og fleira.

Á jóladag var svo farið í hangikjöt á Eyrarbakka og seinnipartinn til Eddu frænku í Þorlákshöfn – það er alltaf gaman að hitta allar frænkurnar og frændurna sem ég á, ég er nebblega svo rík!

Við mamma vorum í fríi mánudaginn eftir jól en veslings pabbi þurfti að fara vinna. Það sem eftir lifði viku fór svo í leikskóla og bið eftir næsta föstudegi þá voru nefnilega áramótin að koma!

Á fimmtudeginum 30. fengum við svo nýja bílinn okkar – Skoda Octavia steisjon með dísilvél því eins og Finnur frændi segir þá er eina vitið í dag að fá sér bíl með dísilvél. Eftir að við sóttum bílinn var rúntað heim, pakkað í töskur og brunað austur fyrir fjall til ömmu og afa í Þorlákshöfn. Við mamma fórum reyndar á Eyrarbakka því þar voru Aron Elvar, Heiða og Egill og við gistum þá nótt.

Áramótin voru svakalega flott, eða það segja allir að minnsta kosti. Það kom í ljós að ég er logandi hrædd við rakettur og bombur og meira að segja ekki par hrifin af stjörnuljósi!!! Mamma og pabbi eru að vona að það breytist næstu áramót því það er frekar leiðinlegt að missa af öllu fjörinu vegna hræðslu.

Við höfum reynt að njóta síðustu daga vegna þess að í gær vorum við að taka niður jólaskrautið í íbúðinni okkar og þar með talið allar seríur. Það agalegt að missa alla ljósadýrðina allt í einu en sem betur fer er bara tæpt ár í að ljósin komi aftur!

Við förum svo að huga að því að pakka ofan í kassa því það styttist í að við fáum húsið okkar (1. mars). Við byrjuðum aðeins í dag með því að laga til í geymslunni okkar og henda því sem mátti henda, pabbi fór með nánast fullt skott í Sorpu í dag, dót sem hefði verið alger óþarfi að ferðast með þegar við förum til Þorlákshafnar.

Þangað til næst, hafið það sem allra best.

Eva Þórey