Færslusafn 2004

Veiðiferð

Það var heldur betur stuð um síðustu helgi hjá okkur. Á meðan mamma fór í óvissuferð með Heiðarborg fórum við pabbi austur fyrir fjall í veiði. Amma og afi voru með Volann á leigu og ákváðum við pabbi að kíkja á þau og athuga hvort ekki væri hægt að krækja í fisk á grillið.

Þetta var á laugardegi sem við fórum og um leið og við mættum á svæðið voru veiðistangirnar græjaðar og reynt að gabba fisk til að bíta á. Reyndar var svolítið skemmtilegt að rekast á mömmu í innsveitum suðurlands – þá voru þær á Heiðarborg akkúrat í óvissuferð á sömu slóðum og við pabbi vorum að veiða!!

Enginn fiskur kom á land hjá okkur pabba á laugardeginum en amma og afi fengu 3 fiska. Þrátt fyrir dræma veiði var það afar þreytt stelpa sem fór að sofa í veiðikofanum á laugardagskvöldið.

Sunnudagurinn var tekinn snemma, við vorum mætt út í á rúmlega hálf tíu og var atast í henni eitthvað fram eftir degi. Það var þó um þrjú leytið sem að það beit fiskur á öngulinn minn!! Afi hafði hjálpað mér að kasta út í og hann hjálpaði mér líka við að draga fiskinn að landi. Ég lét líka afa alveg um það að losa fiskinn og handleika, var ekki par hrifinn af þessum spriklandi fiski!

En fyrsti fiskurinn kominn á land og í veiðibækur fjölskyldunnar í mínu nafni og það er víst að þeir verða fleiri í framtíðinni. Ég vona bara að hann pabbi fari að draga mömmu líka með í veiðiferðir, þetta er nefnilega alveg svakalega gaman!!

bless í bili,
Eva Þórey

Afmæli

Ég ætla að byrja á því að afsaka þessa bilun sem hefur verið á síðunni minni síðustu daga. Pabbi gleymdi alltaf að laga hana og ekki gat ég treyst á mömmu í þessum málum ( ég veit ekki hvað hefði orðið um síðuna mína ef hún hefði farið að reyna að laga hana).

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég skrifaði síðast og ber þar helst að nefna að ég er orðin 3 ára gömul og hef því stækkað alveg helling. Á afmælisdaginn þegar ég vaknaði fékk ég pakka frá mömmu og pabba en í honum var barbie bíll. Ég fékk nú ekki langan tíma til að leika með hann því ég þurfti að fara í leikskólann þennan morgun sem var ekkert verra því þar var haldið upp á afmælið mitt og ég fékk afmæliskórónu líka.

Ég hélt svo smá veislu á laugardaginn og komu margir í veisluna. Pabbi bjó til Nemo köku og var hún ekkert smá flott og svo fékk ég alveg fullt af pökkum. Ég var ekki lengi að taka utan af pökkunum og var ég komin úr afmælisfötunum undireins því ég fékk svo flott föt frá ömmu og afa á Eyrarbakka að ég varð að máta þau (ég er nefnilega algjör fatafrík).

Um helgina erum við pabbi að fara í veiðiferð með afa og ömmu í Þorlákshöfn og verðum yfir eina nótt. Mamma er að fara í óvissuferð með konunum í leikskólanum svo hún kemur ekki með okkur.

Bið að heilsa að sinni og endilega skrifið í gestabókina mína :)
kveðja, Eva Þórey

afsakið mig!

…hvað ég hef verið löt að skrifa hingað inn. Síðast skrifaði ég 13. júlí sem var daginn áður en ég fór út til Torrevieja á Spáni. Þar vorum við mamma og pabbi ásamt Heiðu, Agli og Aroni Elvari, Frey, Hjörleifi og Bergþóru í sumarhúsi í heilar 2 vikur. Það var alveg geggjað stuð að vera þarna í sólinni þar sem maður gat striplast og buslað daglangt og það án þess að finna fyrir kulda!

Við gerðum nú heilmikið á þessum tveimur vikum sem liðu allt of fljótt. Við fórum í Terra Mítica sem er skemmtigarður rétt fyrir utan Benidorm. Þar fundu allir eitthvað við sitt hæfi og ég fór meira að segja í 6 tæki – alveg geggjað! Við fórum líka í vatnsskemmtigarðinn Aqualandia, sem er í útjaðri Benidorm. Þar skemmti ég mér líka alveg konunglega og reyndar allir í hópnum. Reyndar var ég soldið hrædd við að fara í rennibrautirnar en fór í eina með Bergþóru – það var ekkert mál!

Að sjálfsögðu var verslað örlítið í leiðinni. Við fórum 2svar til Alicante í stóra “Kringlu” og fundum einnig flotta Nike búð og heimsins frægustu leikfangaverslanakeðju; Toys R Us (þar var sko mikið af flottu dóti). Við kíktum einnig í verslanir á Benidorm, gerðum meðal annars dauðaleit þar að Zara verslun sem spánverjar bera víst fram sem ÞARA!

Maður fer ekki í spánar án þess að fara á ströndina! Við fórum reyndar bara einu sinni þangað en mig langaði sko að fara oftar. Ég prófaði að sigla á litlum gúmmíbát, buslaði í sjónum með mömmu og pabba og bjó til sandkastala og kökur með fötu og skóflu.

Við lentum svo í veseni á leiðinni heim. Það bilaði eitthvað í flugvélinni svo hún þurfti að snúa við og lenda í Barcelona og þar þurftum við að dúsa í um það bil 5 tíma. Ég svaf svo meirihlutann af ferðinni heim til íslands sem var mjög gott eftir allt þetta ferðalag.

Nú er bara að byrja að safna aftur svo maður komist út í sólina aftur sem fyrst!

Á morgun fer fjölskyldan til Þorlákshafnar því þar verða haldnir Hafnardagar um helgina. Nylon stelpurnar syngja annaðkvöld og ég ætla að reyna kíkja á þær. Á laugardagsmorgun er svo dorgveiðikeppni og ég ætla að fara með afa og ömmu og reyna krækja í nokkra marhnúta!

stuðkveðjur,
Eva Þórey

Útilegur

Við skruppum í útilegu á síðasta föstudag í Laugarás. Gestur frændi kom með okkur og hundurinn hún Bella sem hann var að passa. Það átti að vera sól og blíða alla helgina og vorum við vongóð um að vera í sólbaði og rólegheitum alla helgina. En aldeilis ekki það rigndi alveg þvílíkt allan laugardagsmorgunin svo það endaði með því að við gáfumst upp eftir að amma Snjólaug sagði okkur frá blíðunni á Bakkanum. Við drifum okkur þangað og vorum þar yfir nóttina.

Á mánudaginn átti hún Victoría frænka mín afmæli og fórum við með henni, Rögnu Kristínu, Söru, Sylvíu og Heiðrúnu í húsdýragarðinn. Við fengum rosa gott veður og skemmtum okkur vel.

Nú erum við að undirbúa næstu útilegu en við erum að fara á ættarmót í Gaulverjabæ. Það er ættin hans afa Jóa sem er að koma saman svo Aron frændi minn kemur líka. Við erum bara að vona að við fáum aðeins betra veður en í síðustu útilegu.

Í næstu viku förum við svo til Spánar. Það er sko mikið að gerast hjá mér þessa daganna.

sjáumst, Eva Þórey

Jónsmessuhátíð

Við fórum á Eyrarbakka á laugardaginn en þá var haldin hin árlega Jónsmessuhátíð. Við vorum nú ekkert voðalega spennt þetta árið því veðrið var svo leiðinlegt. En við ákváðum að drífa okkur á brennuna sem byrjaði klukkan 22 og eftir það rættist aðeins úr veðrinu eða allavega létum við það ekkert á okkur fá. Mér fannst brennan mjög spennandi en var náttúrulega orðin svolítið þreytt, því það var löngu komið yfir minn háttatíma. Mamma fór með mig heim til afa Kalla en hann var að passa mig og Söru og Sylvíu því mamma og pabbi fóru aftur á hátíðina.

Við fórum svo líka til ömmu og afa í Þorlákshöfn um helgina. Þau gáfu mér litla veiðistöng svo ég geti farið að veiða með pabba. Ég var mikið ánægð með hana og vildi varla sleppa henni, nú bíð ég bara eftir tækifæri til að geta notað hana.

Nú erum við mamma komnar í sumarfrí og þá styttist nú í að við förum til Spánar, jibbbbí :o )
sjáumst, Eva Þórey

Skemmtileg helgi á Bakkanum

Nú eru frænkur mínar frá Ítalíu komnar. Við fjölskyldan fórum á Eyrarbakka að hitta þær um helgina. Það var rosa fjör hjá okkur og náðum við strax saman þó við værum ekki búnar að hittast frá því um jólin. Sara talaði strax við okkur íslensku en Sylvía skilur íslensku en talar aðallega ítölsku en ég var nú fljót að redda mér því ég var farin að reyna tala við hana á bull máli (sem ég kallaði ítölsku).

Nú er það bara þessi vika eftir í leikskólanum fyrir sumarfrí og er okkur farið að hlakka mikið til. Pabbi verðu nú samt ekki í fríi með okkur allan tímann en eitthvað samt. Hann var að byrja í nýrri vinnu í dag hjá Nýherja og er því hættur hjá KB banka þar sem honum líkaði ekki þar.

TIL HAMINGJU MEÐ NÝJU VINNUNA PABBI MINN!!

kveðja, Eva Þórey

Sumarhátíð

Jæja, það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið að ég hef alveg gleymt að skrifa á síðuna mína. Í síðustu viku var haldin sumarhátíð í leikskólanum mínum. Það var margt um að vera, við fórum í skrúðgöngu, grilluðum pylsur og svo voru leigðir tveir hoppukastalar. Mér leist ekkert á að fara í þessa hoppukastala, það var bara nóg að horfa á þá. Síðan á föstudaginn kom Brúðubíllinn til okkar og það var sko gaman.

Eftir leikskóla á föstudaginn brunuðum við svo á Eyrarbakka því pabbi fór að veiða. Það var svo gott veður hjá ömmu og afa að við vorum úti fram eftir kvöldi. Pabbi kom svo seinna um kvöldið heim með 3 fiska sem hann veiddi og einn var alveg risastór en ég var sofnuð þegar hann kom heim svo ég fékk ekki að sjá þá.

Nú er ég farin að bíða eftir frænkum mínum þeim Heiðrúnu, Söru og Sylvíu en þær eru að koma til landsins á morgun frá Ítalíu. Við sáum þær síðast á jólunum svo það verður gaman að hitta þær aftur.

Heyrumst seinna,
Eva Þórey :)

Ferð í húsdýragarðinn

Í dag fór ég í ferð með nokkrum úr leikskólanum mínum í húsdýragarðinn.

Við fórum í strætó þangað og var það næstum jafn gaman og að vera í húsdýragarðinum. Við skoðuðum öll dýrin og fórum svo í fjölskyldugarðinn og fengum grillaðar pylsur og ís á eftir. Svo fengum við að leika okkur í stóra skipinu og öllum leiktækjunum á eftir. Þetta var mjög skemmtileg ferð og var ég frekar þreytt á eftir, enda sofnaði ég í litla stólnum mínum þegar ég kom heim úr leikskólanum. Jæja best að fara í bað, bless í bili, Eva Þórey :)

júróvisjón

Á laugardaginn var stuð. við fórum til Þorlákshafnar því mamma og pabbi lofuðu ömmu að vinna í Mánanum. Það var tilboð í gangi vegna júróvisjón og amma þurfti á duglegu fólki að halda ;o)

Amma og afi frá Eyrarbakka komu að sækja mig og ég fór með þeim í “litla bílnum” (litli bíllinn er Octavian þeirra, því nú þegar við erum komin á jeppa eru fólksbílar orðnir litlir bílar!).

Ég horfði á keppnina með ömmu og afa svo kom mamma rétt áður en Jónsi steig á svið. Að sjálfsögðu söng ég með laginu og amma var alveg hreint yfir sig hissa að ég gæti sungið svona mikið með! Reyndar á ég tvö uppáhaldslög úr júróvisjón; Heaven með Jónsa og Wild Dance með Ruslana Úkraínukoff (ég kann nebblega að dansa eins og Ruslana!).

Jæja ég læt þetta duga í bili….

kveðja,
Eva Þórey

Sunnudagsrúntur

Á laugardaginn var opið hús í leikskólanum mínum og fórum við pabbi (mamma var að vinna) saman að skoða verkin mín frá nýliðnum vetri.

Á sunnudaginn fórum við fjölskyldan í sunnudagsrúnt til ömmu og afa í Keflavík. Það var svo gaman hjá þeim að ég ætlaði varla að vilja fara heim. Við fórum út á róló með ömmu að róla og vega salt en á meðan var afi að elda dýrindis fiskrétt handa okkur. Við keyrðum svo heim um kvöldið og var ég orðin ansi þreytt þá.

kveðja, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE