Það var heldur betur stuð um síðustu helgi hjá okkur. Á meðan mamma fór í óvissuferð með Heiðarborg fórum við pabbi austur fyrir fjall í veiði. Amma og afi voru með Volann á leigu og ákváðum við pabbi að kíkja á þau og athuga hvort ekki væri hægt að krækja í fisk á grillið.
Þetta var á laugardegi sem við fórum og um leið og við mættum á svæðið voru veiðistangirnar græjaðar og reynt að gabba fisk til að bíta á. Reyndar var svolítið skemmtilegt að rekast á mömmu í innsveitum suðurlands – þá voru þær á Heiðarborg akkúrat í óvissuferð á sömu slóðum og við pabbi vorum að veiða!!
Enginn fiskur kom á land hjá okkur pabba á laugardeginum en amma og afi fengu 3 fiska. Þrátt fyrir dræma veiði var það afar þreytt stelpa sem fór að sofa í veiðikofanum á laugardagskvöldið.
Sunnudagurinn var tekinn snemma, við vorum mætt út í á rúmlega hálf tíu og var atast í henni eitthvað fram eftir degi. Það var þó um þrjú leytið sem að það beit fiskur á öngulinn minn!! Afi hafði hjálpað mér að kasta út í og hann hjálpaði mér líka við að draga fiskinn að landi. Ég lét líka afa alveg um það að losa fiskinn og handleika, var ekki par hrifinn af þessum spriklandi fiski!
En fyrsti fiskurinn kominn á land og í veiðibækur fjölskyldunnar í mínu nafni og það er víst að þeir verða fleiri í framtíðinni. Ég vona bara að hann pabbi fari að draga mömmu líka með í veiðiferðir, þetta er nefnilega alveg svakalega gaman!!
bless í bili,
Eva Þórey









Nýlegar athugasemdir