Færslur í August 2004

afsakið mig!

…hvað ég hef verið löt að skrifa hingað inn. Síðast skrifaði ég 13. júlí sem var daginn áður en ég fór út til Torrevieja á Spáni. Þar vorum við mamma og pabbi ásamt Heiðu, Agli og Aroni Elvari, Frey, Hjörleifi og Bergþóru í sumarhúsi í heilar 2 vikur. Það var alveg geggjað stuð að vera þarna í sólinni þar sem maður gat striplast og buslað daglangt og það án þess að finna fyrir kulda!

Við gerðum nú heilmikið á þessum tveimur vikum sem liðu allt of fljótt. Við fórum í Terra Mítica sem er skemmtigarður rétt fyrir utan Benidorm. Þar fundu allir eitthvað við sitt hæfi og ég fór meira að segja í 6 tæki – alveg geggjað! Við fórum líka í vatnsskemmtigarðinn Aqualandia, sem er í útjaðri Benidorm. Þar skemmti ég mér líka alveg konunglega og reyndar allir í hópnum. Reyndar var ég soldið hrædd við að fara í rennibrautirnar en fór í eina með Bergþóru – það var ekkert mál!

Að sjálfsögðu var verslað örlítið í leiðinni. Við fórum 2svar til Alicante í stóra “Kringlu” og fundum einnig flotta Nike búð og heimsins frægustu leikfangaverslanakeðju; Toys R Us (þar var sko mikið af flottu dóti). Við kíktum einnig í verslanir á Benidorm, gerðum meðal annars dauðaleit þar að Zara verslun sem spánverjar bera víst fram sem ÞARA!

Maður fer ekki í spánar án þess að fara á ströndina! Við fórum reyndar bara einu sinni þangað en mig langaði sko að fara oftar. Ég prófaði að sigla á litlum gúmmíbát, buslaði í sjónum með mömmu og pabba og bjó til sandkastala og kökur með fötu og skóflu.

Við lentum svo í veseni á leiðinni heim. Það bilaði eitthvað í flugvélinni svo hún þurfti að snúa við og lenda í Barcelona og þar þurftum við að dúsa í um það bil 5 tíma. Ég svaf svo meirihlutann af ferðinni heim til íslands sem var mjög gott eftir allt þetta ferðalag.

Nú er bara að byrja að safna aftur svo maður komist út í sólina aftur sem fyrst!

Á morgun fer fjölskyldan til Þorlákshafnar því þar verða haldnir Hafnardagar um helgina. Nylon stelpurnar syngja annaðkvöld og ég ætla að reyna kíkja á þær. Á laugardagsmorgun er svo dorgveiðikeppni og ég ætla að fara með afa og ömmu og reyna krækja í nokkra marhnúta!

stuðkveðjur,
Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE