Færslur í June 2004

Jónsmessuhátíð

Við fórum á Eyrarbakka á laugardaginn en þá var haldin hin árlega Jónsmessuhátíð. Við vorum nú ekkert voðalega spennt þetta árið því veðrið var svo leiðinlegt. En við ákváðum að drífa okkur á brennuna sem byrjaði klukkan 22 og eftir það rættist aðeins úr veðrinu eða allavega létum við það ekkert á okkur fá. Mér fannst brennan mjög spennandi en var náttúrulega orðin svolítið þreytt, því það var löngu komið yfir minn háttatíma. Mamma fór með mig heim til afa Kalla en hann var að passa mig og Söru og Sylvíu því mamma og pabbi fóru aftur á hátíðina.

Við fórum svo líka til ömmu og afa í Þorlákshöfn um helgina. Þau gáfu mér litla veiðistöng svo ég geti farið að veiða með pabba. Ég var mikið ánægð með hana og vildi varla sleppa henni, nú bíð ég bara eftir tækifæri til að geta notað hana.

Nú erum við mamma komnar í sumarfrí og þá styttist nú í að við förum til Spánar, jibbbbí :o )
sjáumst, Eva Þórey

Skemmtileg helgi á Bakkanum

Nú eru frænkur mínar frá Ítalíu komnar. Við fjölskyldan fórum á Eyrarbakka að hitta þær um helgina. Það var rosa fjör hjá okkur og náðum við strax saman þó við værum ekki búnar að hittast frá því um jólin. Sara talaði strax við okkur íslensku en Sylvía skilur íslensku en talar aðallega ítölsku en ég var nú fljót að redda mér því ég var farin að reyna tala við hana á bull máli (sem ég kallaði ítölsku).

Nú er það bara þessi vika eftir í leikskólanum fyrir sumarfrí og er okkur farið að hlakka mikið til. Pabbi verðu nú samt ekki í fríi með okkur allan tímann en eitthvað samt. Hann var að byrja í nýrri vinnu í dag hjá Nýherja og er því hættur hjá KB banka þar sem honum líkaði ekki þar.

TIL HAMINGJU MEÐ NÝJU VINNUNA PABBI MINN!!

kveðja, Eva Þórey

Sumarhátíð

Jæja, það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið að ég hef alveg gleymt að skrifa á síðuna mína. Í síðustu viku var haldin sumarhátíð í leikskólanum mínum. Það var margt um að vera, við fórum í skrúðgöngu, grilluðum pylsur og svo voru leigðir tveir hoppukastalar. Mér leist ekkert á að fara í þessa hoppukastala, það var bara nóg að horfa á þá. Síðan á föstudaginn kom Brúðubíllinn til okkar og það var sko gaman.

Eftir leikskóla á föstudaginn brunuðum við svo á Eyrarbakka því pabbi fór að veiða. Það var svo gott veður hjá ömmu og afa að við vorum úti fram eftir kvöldi. Pabbi kom svo seinna um kvöldið heim með 3 fiska sem hann veiddi og einn var alveg risastór en ég var sofnuð þegar hann kom heim svo ég fékk ekki að sjá þá.

Nú er ég farin að bíða eftir frænkum mínum þeim Heiðrúnu, Söru og Sylvíu en þær eru að koma til landsins á morgun frá Ítalíu. Við sáum þær síðast á jólunum svo það verður gaman að hitta þær aftur.

Heyrumst seinna,
Eva Þórey :)