Færslur í April 2004

Ungi litli

Í dag var röðin komin að okkur á Lundi að sýna leikritið okkar. Það hét Ungi litli og var það sýnt í salnum í leikskólanum. Það gekk alveg rosalega vel, ég lék mörgæsabarn og var alveg svakalega dugleg.
Ég brosti bara til mömmu og pabba þegar ég sá þau vera horfa á mig og hélt áfram að leika. Eftir leikritið sungum við lagið um hana Línu Langsokk. Mömmu og pabba fannst alveg rosalega gaman að horfa á og tóku þau mikið af myndum (sem við munum setja í myndasafnið bráðlega).

Bið að heilsa að sinni,
Eva Þórey

Róleg helgi

Helgin var mjög róleg, alla vega hjá okkur mömmu. Pabbi var að vinna alla helgina og fór svo að veiða seinni partinn á sunnudeginum svo það var nóg að gera hjá honum . Ég og mamma vorum í algjörri afslöppun og fórum varla neitt, nema á laugardaginn fórum við að heimsækja Söndru Dís og litla strákinn hennar sem heitir Daníel Þór. Hann er alveg pínulítill og mamma segir að hann sé alveg eins og pabbi sinn. Mér fannst hann algjör dúlla og mömmu líka en hún vill samt ekki gefa mér svona lítinn bróður, alla vega ekki strax.

Í dag fór ég í leikskólann en þessa vikuna er verið að sýna leikrit sem hver deild fyrir sig er að setja upp. Í dag var Bali að sýna leikrit en á miðvikudaginn er komið að okkur á Lundi, deildinni minni, að sýna okkar leikrit sem heitir Ungi litli. Annars var bara fínt á leikskólanum í dag þar sem við vorum mikið úti í góða veðrinu.

kveð að sinni,
Eva Þórey

Ummæli

Það er komin nýjung á síðuna hjá mér, hann pabbi var að bæta við svona ummæla kerfi við dagbókarfærslurnar. Þið megið endilega nýta ykkur þessa nýjung og láta í ykkur heyra!

stuðkveðjur,
Eva Þórey

sumarbústaður

Já góðir hálsar, við fjölskyldan erum að fara í sumarbústað í Úthlíð í dag eftir leikskóla (og vinnu). Amma Veiga og Afi Ómi eru þar ásamt Gesti frænda í rólegheitum og verður gott að komast í sveitina í afslöppun.

Reyndar held ég að pabbi hafi gott af því að setjast aðeins í heita pottinn og hugsa sín mál, því það hefur alveg heilmikið gerst í þessari viku hjá honum – með atvinnumál – nokkur tilboð á borðinu (já, pabbi er kúl gaur sem er ýkt vinsæll á markaðnum). Fyrir þá sem ekki vita, þá er hann búinn að segja upp störfum hjá fyrirtækinu sem hann er hjá núna.

En hvað það er sem er að gerast í augnablikinu höldum við utan lýðnetsins, í bili að minnsta kosti.

Best að fara drífa sig í sveitasæluna, jafnvel að maður kíki í pottinn??

Lets gó!

sveitakveðja,
Eva Þórey

Páskar

Jæja, páskarnir búnir og leikskóli í fyrramálið. Við fjölskyldan erum búin að hafa það afar notalegt yfir hátíðarnar, ýmist á Eyrarbakka eða í Þorlákshöfn. Ég fékk páskaegg þegar ég vaknaði á Páskadagsmorgun og held ég hafi slegið einhver met í páskaeggjaáti, svona þegar aldur og stærð er vegin með…

Í dag, annan í páskum, var svo bara slappað af. Ég horfði á Bósa Ljósár í morgun og vatnaði músum yfir einhverju sorgaratriði, mamma heyrði mig snökta í stofunni og skellihló svo þegar hún sá hvað var í gangi.

Amma, afi og Ragna Kristín komu í heimsókn í dag. Fóru á rúntinn á nýja bílnum og enduðu í Reykjavíkinni, ætluðu að sinna einhverjum fleiri erindum en það var víst allt lokað…
Þau kíktu því í heimsókn og afi og pabbi horfðu á Chelsea tapa 1-3 fyrir Aston Villa, ég er stórhneyksluð á Raníerí að hafa ekki sett Eið inn á – hann hefði reddað málunum.

Enn hneykslaðri er ég á þessu Líverpúl liði, töpuðu í dag fyrir Charlton og það á Anfield. Ég segi að skrambans Húllíer hefði átt að taka pokann sinn fyrir langa laungu, en það hlustar víst enginn á rétt rúmlega tveggja ára stelpu frá Reykjavík…

þangað til næst,
Eva Þórey

Viðburðaríkur gærdagur

Sæl öll, mikið að gerast hjá mér í gær! Eftir vinnu/leikskóla í gær hentum við fjölskyldan dóti ofan í tösku og brunuðum austur fyrir fjall á Eyrarbakka. Mamma var nebblega að fara á keppnina Ungfrú Suðurland þar sem frænka mín Ragna Kristín var að keppa.

Við pabbi litum inn og ég heilsaði upp á Aron Elvar en hann og mamma hans og pabbi voru búin að vera á Bakkanum síðan á mánudag.

Eftir stutta dvöl fórum við pabbi svo til Þorlákshafnar og gistum þar um nóttina hjá ömmu og afa. Vitanlega fengum við okkur ekta Mána pizzu (eða pitsu, hvort er réttara???) og Egill og Aron Elvar komu í höfnina og borðuðu með okkur. Eins og alltaf þá véku amma og afi úr rekkjum sínum fyrir næturgestunum og við pabbi nutum þægindanna í að vera tvö i Kíng Sæs rúmi. Rúmið var meira að segja það þægilegt að ég var búin að fá nægan svefn klukkan 08:05 og ræsti þá pabba, honum var ekki skemmt.

Mér til mikillar ánægju var Elva frænka í pössun hjá ömmu til hádegis þannig að við lékum helling saman auk þess að horfa á skrípó og Stjúart Litla Tvö.

Af úrslitum keppninnar er það að segja að Ragna Kristín var kosin NETSTÚLKAN! Til hamingju með það elsku frænka, stórt knús (yo, teletubbís stæl).

En það styttist óðum í Páskadag sjálfan, er búin að renna hýru auga til páskaeggsins sem mamma og pabbi keyptu fyrir mig. Það liggur ósnert inni í ísskáp, bíður þess að litlir saklausir fingur fari um það með óblíðum höndum. Bíður þess sem skal verða vegna yfirvofandi hryðjuverkaárásar…. namm namm ;)

tilhlökkunarkveðja,
Eva Þórey

Ælupest

Ég fékk smá ælupest á föstudagskvöldið og ældi allt út(rúmið, gólfið og mömmu). En vaknaði sem betur fer eldhress á laugardagsmorgun.
Aron Elvar frændi minn kom í heimsókn til mín um daginn og vorum við voða góð að leika okkur saman.

Ég fór í fermingarveislu síðustu helgi hjá Þyrí frænku í Hafnarfirði. Ég tók ekki í mál að fara með mömmu og pabba inneftir, heldur vildi ég miklu frekar fara með ömmu, afa og Eddu frænku. Ég hélt uppi stuðinu á leiðinni því þau veinuðu úr hlátri allan tímann, ég er nú svoddan stuðbolti!

Í dag erum við svo að fara í fermingarveislu hjá Hólmari Erni frænda mínum og hlakka ég mikið til, því mér finnst svo gaman að fara í veislur.

Þangað til næst, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE