Færslur í March 2004

Pakkaflóð og afmæli

Amma og afi í Keflavík komu í heimsókn í dag. Þau komu hlaðin pökkum handa okkur. Mamma fékk einn því hún átti afmæli um daginn og ég og pabbi fengum líka pakka. Ég fékk púsluspil, stórar perlur, sleikjó og pez. Þetta var ekkert smá mikið sem ég fékk, það var eins og ég ætti afmæli.

Seinna um daginn fórum við mamma í afmæli til hans Hákons, hann varð 3 ára á föstudaginn. Ég fékk afmælisköku og popp og svo fór ég að leika mér með Hákoni og Bjarka Val. Það var svo gaman að ég ætlaði ekki að vilja fara heim.

Bless í bili, Eva Þórey

Endilega munið að skrifa í gestabókina mína.

Nýr áfangi

Haldiði ekki að ég hafi hjólað heilan helling á þríhjólinu mínu í gær! Þá er sko ekki að meina að ég hafi staðið aftan á því og ýtt mér áfram… Neibbs, heldur sat ég á hnakkinum og hjólaði með fótstigunum, og það um alla íbúð.

Svona er þetta, einn daginn ganga hlutirnir ekki, svo þann næsta þá tekur maður sér verkefni fyrir hendur og klára með stæl!

Að öðru leyti lítið að frétta, vonandi hef ég meira að segja í næstu færslu.

Kveðja,
Eva Þórey

STÓRT ÚPS!!!

Haldið þið ekki að gleymskupésinn hann pabbi minn hafi gleymt að segja ykkur frá afmælinu hennar mömmu!!! Hún átti nefnilega afmæli síðasta mánudag, 8. mars.

Við gerðum okkur þó glaðan dag á laugardaginn (smá forskot á sæluna) og fórum í afmælis-kvöldmat á Pizza Hut, svakalegt stuð.

En að sjálfsögðu: TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU MAMMA MÍN!!

Annars frekar lítið að frétta, mamma og pabbi eru jú að fara á árshátíð Leikskóla Reykjavíkur annað kvöld og ég verð í pössun hjá ömmu og afa á Eyrarbakka, efa ekki að það verði gaman.

jæja, læt þetta duga að sinni.

kv.
Eva Þórey

Til hamingju með afmælið Heiðrún

Hún Heiðrún frænka mín á Ítalíu á afmæli í dag og vil ég óska henni innilega til hamingju með það.

Annars er lítið að frétta. Presturinn kom í leikskólann í dag og var að syngja með okkur. Það er alltaf gaman þegar presturinn kemur en fyrst þegar hann kom í leikskólann var ég hálf hrædd við hann en ég held ég sé farin að venjast honum núna.

Amma, afi og Ragna Kristín komu að sækja mig í leikskólann og var ég hálf hissa að sjá þau þar en það var ekkert smá gaman.

Kveðja, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE