Jæja, nú er ég öll að hressast enda komin með nóg af þessum veikindum.
Það er ekki það skemmtilegasta að hanga heima með 40 stiga hita og niðurgang. En þetta er allt að koma því í dag var ég orðin hitalaus 
Hann Aron Elvar frændi minn hélt upp á afmælið sitt í dag og fórum við fjölskyldan til hans. Ég gaf honum skógarlíf-spólu og lítinn bíl. Það var næstum því eins og ég ætti líka afmæli því ég fékk líka pakka. Amma og afi á Eyrarbakka gáfu mér Línu Langsokk púsluspil og Erla langamma mín gaf mér ullarsokka og lego myndaramma. Þannig að ég fór hlaðin gjöfum heim úr afmælinu.
Jæja ætli það sé ekki best að fara að sofa núna því ég ætla að reyna að komast á leikskólann á morgun.
kveðja,
Eva Þórey
Nýlegar athugasemdir