Færslur í January 2004

Hann á afmæli í dag!

Hann Ómi afi minn í Þorlákshöfn á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið elsku afi minn! Þúsund kossar beint frá reykjavík :o )

Annars er voðalega lítið af mér að frétta, búin að vera að hósta eitthvað undanfarið, kannski ekki skrýtið þar sem búið er að vera bara leiðindaveður undanfarið. En lífið gengur sinn vanagang hérna í reykjavíkinni, ég og mamma á leikskólanum 5 daga vikunnar og pabbi á suðurlandsbrautinni.

Mamma og pabbi ætla að reyna að fara á Lord Of The Rings – Return Of the King á laugardaginn þar sem Heiða og Aron Elvar eru búin að bjóðast til að passa mig á meðan, eðalfólk að hleypa mömmu og pabba í bíó! Þau voru nefnilega að horfa á LOTR Two Towers síðustu helgi og urðu alveg sjúk að fara að sjá síðustu myndina í þessum magnaða þríleik (er kannski grunsamlegt að ég sé með svona svakalegan orðaforða? Mætti halda að það skrifaði einhver annar en ég hingað inn ;o) ).

þangað til næst…

kveðja,
Eva Þórey

jólin búin

Jæja nú eru jólin búin :o ( . Ég hafði það rosalega gott yfir jólin.

Á aðfangadag vorum við fjölskyldan hjá ömmu og afa á Eyrarbakka. Það var mjög gaman og fékk ég marga pakka. Ég var alveg óð að taka upp pakkana og vildi helst taka alla upp, líka mömmu og pabba pakka.
Ég var mjög ánægð með eina gjöfina mína sem var Liverpool búningurinn, ég fór strax úr jólakjólnum í búninginn. Sara, Sylvía og Aron Elvar voru líka hjá ömmu og afa og var mikið fjör hjá okkur.
Á jóladag vorum við í jólaboði hjá afa Ragga í hádeginu og hjá Eddu frænku um kvöldið og var ég frekar feiminn þann daginn.

Við vorum hjá ömmu og afa í Þorlákshöfn á gamlársdag. Þar var ég að leika við frænkur mínar þær Jenný og Elvu. Við fórum út að horfa á flugeldanna og ég fékk að halda á stjörnuljósi en ég var ekki lengi úti því ég var frekar hrædd við þennan hávaða, svo mér fannst betra að horfa á flugeldanna út um gluggann.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE