Færslusafn 2004

prakkarinn mikli

Jæja þá eru jólasveinarnir farnir að koma og er það alveg svakalega spennandi. Á morgnanna er mjög auðvelt að vekja mig því ég hoppa bara strax á fætur og beint út í glugga. Ég reyni nú alltaf að vera stillt en stundum get ég ekki hamið mig og er pínu óþekk.

Í dag var ég t.d. mjög mikill prakkari og mamma varð svakalega reið. Þannig er það nefnilega að ég fór í klippingu í gær og varð voða fín um hárið en í dag varð ég nú að kanna hvort ég gæti ekki líka klippt eins og klippingakonan (eins og ég kalla hana). Ég tók skæri þegar mamma sá ekki til og klippti nokkra lokka af hárinu á mér. Þegar mamma kom að mér hélt ég á hárlokkunum og var voða stolt. Mamma og Pabbi eiga eftir að hlæja að þessu seinna meir en þetta er ekkert spennandi svona rétt fyrir jól þegar allir eiga að vera svo fínir og sætir en ég verð með stærðar skarð upp i toppinn minn.

jólakveðja, ykkar Eva Þórey

Leikskólafjör

Það er búið að vera mikið að gerast í leikskólanum þessa dagana. Í síðustu viku vorum við á Lundi að baka smákökur en í næstu viku ætlum við að bjóða foreldrum okkar að koma og smakka á kökunum.

Á þriðjudaginn kom leikrit í leikskólann sem heitir smiður jólasveinsins og var rosalega gaman að horfa á það. Sumir af yngstu krökkunum urðu hrædd og þurftu að fara inn á deild en ekki ég :)

Á miðvikudaginn fóru svo nokkrir krakkar af minni deild á bókasafnið með strætó. Það var nú heldur betur fjör því mér finnst svo gaman að fara í strætó. Á bókasafninu var lesin saga um Snuðru og Tuðru, sem var mjög skemmtileg og fórum við síðan í leikskólann aftur með strætó.

Annars er ekki mikið meira að frétta af mér í bili því ég geri lítið annað þessa dagana en að hlusta á Nylon diskinn. Mamma þarf að kveikja á honum á morgnana þegar ég vakna og líka eftir leikskóla þannig að ég ver mestum mínum tíma í eldhúsinu að dansa og syngja (enda kann ég allan diskinn nær utanað).

Jæja ég bið að heilsa að sinni.
Kveðja, Eva Þórey

Myndir af húsinu

Við skelltum nokkrum myndum í myndasafnið af húsinum sem við erum að kaupa í Þorlákshöfn, endilega kíkið á þær! Albúmið heitir “Nýtt hús”.

Mikið af afmælum

Það er mikið að gera í afmælum þessa stundina hjá okkur því það eiga nánast allir í fjölskyldunni afmæli í nóvember. 12. nóv. átti afi Kalli afmæli, 20. nóv átti afi Jói afmæli svo átti Grétar Ingi frændi minn afmæli í gær þann 21.nóv. Síðast en ekki síst er það Ómar Páll frændi minn en hann á afmæli 26. nóv. Til hamingju með afmælið allir 4.

Við seldum íbúðina okkar í vikunni og tók það ekki langan tíma… innan við viku. Við flytjum líklega til Þorlákshafnar í byrjun mars á nærsta ári og er ég farin að hlakka mikið til. En loksins þegar allt gengur vel þá hlaut eitthvað að gerast……..bíllinn okkar bilaði í frostinu mikla fyrir helgi svo við erum búin að vera bíllaus síðan þá. En hann fór á verkstæði á dag og verður vonandi tilbúinn á morgun.

Það var nú meira vesenið á mér í nótt. Ég vakti mikið og grét því mér var svo illt í öðru eyranu, þannig að mamma ákvað að fara með mig á læknavaktina. Við þurftum að fara með strætó þangað út af bílleysinu en mér fannst það nú bara gaman en mamma var ekki eins kát með það. Læknirinn sagði að ég væri með eyrnabólgu og þurfti ég að fá meðal…ohhhh. En það er nú gott að ég fékk engan hita með þessu því við á leikskólanum erum að fara að baka í vikunni og ætla ég sko ekki að missa af því.
jæja við heyrumst seinna,
Eva Þórey

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ PABBI

Pabbi minn átti afmæli í gær og varð hann þriggja ára ( þar sem ég er þriggja ára þá eru allir þriggja ára). Við höfðum ekki tíma til að skrifa í gær því það var sko nóg að gera hjá okkur á afmælisdaginn. Við fjölskyldan fórum út að borða á Fridays og fékk ég ís á eftir því ég var svo dugleg að borða matinn minn.

Annars er það að frétta að á síðasta föstudag fórum við mamma á Nylon tónleika saman og pabbi var heima. Mér fannst alveg rosalega gaman á tónleikunum og mömmu fannst það líka. Reyndar fannst mömmu lang skemmtilegast að fylgjast með mér því ég sat þarna í stúkunni eins og algjör prinsessa og fílaði mig geðveikt.

Við fórum til Þorlákshafnar um helgina að sjá litla tvíbura sem Rúnar vinur hans pabba á. Þau heita Daníel og Birgitta og eru algjörar dúllur. Ég er nú þegar búin að leggja inn pöntun fyrir einu svona litlu kríli og þá vil ég frekar fá bróður en systur og er reyndar búin að segja þeim í leikskólanum að ég eigi bróður. Mamma segir að ég fái einhverntíman systkini en ekki alveg strax.

Við gerðum fleira í Þorlákshöfn því við skoðuðum hús og erum jafnvel að spá í að kaupa það og flytja til Þorlákshafnar á næsta ári……….já, það er mikið að gerast á stóru heimili.

Þangað til næst, ykkar Eva Þórey

Ég er afar snjöll

…því ég kann sko að flauta! Ég syng til dæmis lagið sem dvergarnir í Mjallhvít kyrja: “Hæ hó, hæ hó, við höfum starfað nóg, flaut flaut flaut…”. Ég læt mér samt ekki nægja að flauta í þessu lagi, ég er nefnilega alltaf að æfa mig, þó ég sé bara á röltinu um íbúðina eða að leika mér – því eins og gárungarnir segja: “æfingin skapar meistarann”!!

Ég gleymdi að segja ykkur frá því að ég var að fá glænýjan frænda. Hún Ása frænka eignaðist lítinn strák þarsíðustu helgi. Til hamingju elsku Ása og Rabbi!

Annars förum við til Eyrarbakka/Þorlákshafnar um helgina. Pabbi ætlar að vinna hjá ömmu í Mánanum á föstu- og laugardagskveld, auk þess sem amma og afi á Eyrabakka eru að koma frá Portúgal í dag. Ég ætla að sjálfsögðu líka að kíkja á nýja frænda minn! Við mamma ætlum svo að kíkja á NYLON tónleika föstudaginn 5. nóvember, það verður sko stuð!!

Rokk og meir stuð, bæ í bili
Eva Þórey

Alltaf einhver leiðindar veikindi

Ég afsaka hvað við erum búin að vera löt við að skrifa á síðuna mína. Það er svo sem ekkert mikið sem hefur gerst hjá mér undanfarna daga vegna veikinda.

Ég byrjaði á því að fá hálsbólgu og hita í viku eða svo og svo þegar mamma og pabbi héldu að þetta væri búið þá fékk ég ælupest. Og engin smá ælupest því ég er búin að æla út um allt og eina nóttina þurftum við að gera þvílíka hreingerningu í svefnherberginu því ekki nóg með að æla um allt þá fór þetta líka á hinn veginn svo við þurftum að skrúppa allt. En ég er sem betur fer skárri í dag og vona bara að þetta sé búið.

Áður en öll þessi veikindi herjuðu á mig þá fór ég í fyrsta skipti í bíó. Ég, mamma og pabbi fórum að sjá Shrek 2 og fannst mér rosalega gaman. Ég var svakalega stillt allan tímann en varð frekar fúl þegar mér var sagt að það var bara þessa eina mynd sem við ætluðum að horfa á því ég vildi vera lengur þegar myndin var búin.

Svo fór ég í afmæli til Bjarka frænda í Keflavík og var það mikið gaman og vildi ég ekki fara heim. Mamma og pabbi eru farin að halda að þau séu svona svakalega leiðinleg því ég vil aldrei fara heim með þeim eftir að við erum búin að vera í heimsókn.

Það eru fleiri en ég sem eru búnir að vera veikir því hún Ragna Kristín frænka mín þurfti að fara á sjúkrahús því hún varð svo lasin. Hún fékk svo mikinn hita og ældi þvílíkt að hún þornaði upp og var því lögð inn. Við þurftum “passa” hana í tvo daga því amma og afi fóru til Portúgal og verða þar í 8 daga. En henni er nú batnað núna og er á leið í heimsókn til okkar á eftir….jibbí

Lofa að vera duglegri að skrifa.

ykkar Eva Þórey

Smá veikindi

Hún Sara Margrét frænka mín á Ítalíu átti afmæli í gær og varð hún 6 ára. Síðan átti frændi minn í Keflavík hann Freyr líka afmæli í gær en hann varð 19 ára. Til hamingju með afmælið bæði tvö.

Annars er lítið að frétta af mér nema það að ég er nýbúin að vera lasin. Fékk smá hita og kvef og þurfti því að vera heima í tvo daga. Pabbi var heima með mér og gerðum við margt sniðugt yfir daginn. En það var samt mjög gott að komast aftur í leikskólann í gær. Ég var samt frekar fúl yfir því að þurfa að vera inni á leikskólanum. Ég var búin að klæða mig sjálf í pollafötin og stígvélin og alveg tilbúin út í pollana en þá kom mamma og sagði að ég ætti ekki að fara út og ég var sko ekki sátt. En ég var svo heppin að fá að fara á stóru deildina í tölvuna svo ég var fljót að jafna mig.

Við heyrumst síðar, kveðja Eva Þórey

Sumarbústaðarferð

Við fjölskyldan fórum í sumarbústað í Svignaskarði um helgina. Amma og afi í Keflavík, Bjarki frændi og Jóhann Már vinur hans voru komin upp í bústað á undan okkur. Við vorum ekki búin að vera lengi þarna þegar Freyr, Hjörleifur Már og Bergþóra komu.

Ég var svo spennt að fara í heita pottinn að ég gat varla beðið en mamma sagði við mig að ég yrði að bíða fram á laugardag.

Heiða, Egill og Aron komu í heimsókn bæði á föstudagskvöldið og á laugardaginn en þau eiga heima þarna rétt hjá eða á Bifröst.

Þegar ég vaknaði á laugardagsmorguninn þá var það fyrsta sem ég sagði við mömmu “.. má ég núna fara í pottinn” og ég fékk loksins að fara þegar ég var búin að borða morgunmatinn. Ég var í pottinum nær allan laugardaginn að undanskilinni ferð upp á Bifröst þegar við heimsóttum Aron Elvar frænda minn en á meðan fór pabbi og Freyr að veiða.

Það var gaman að heimsækja Aron Elvar á Bifröst. Hann sýndi mér húsið sitt, leikskólann sinn og svo tókum við smá göngutúr um svæðið.

Á laugardagskvöldið grilluðu afi og amma handa okkur læri sem var rosalega gott og svo fórum við í skemmtilega leiki á eftir.

Við fórum svo heim á sunnudaginn og þá ætlaði sko ekki að missa af Hvalfjarðargöngunum því ég svaf víst á leiðinni upp í bústað. Mér fannst þessi göng nú svolítið skrítin en ég var ekkert hrædd í þeim.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ AMMA
Að lokum vil ég svo óska henni Snjólaugu ömmu minni til hamingju með afmælið en hún átti afmæli á föstudaginn þann 17. september
kveðja Eva Þórey

Nýtt myndasafn

Pabbi minn var að breyta og bæta myndasafnið mitt svo endilega kíkið á það. Svo vorum við líka loksins að setja inn myndir úr Spánarferðinni. Kíkið….kveðja, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE