Ég er nú orðin ansi leið á öllum þeim pestum sem ganga á leikskólanum. Ein pestin rekur aðra en svona er þetta víst, þær koma nefnilega alltaf á haustin – þegar tekur að kólna eftir gott sumar. Og svo nebblega þegar maður er á stað þar sem er margt fólk er (eins og á leikskóla) þá fær maður allt saman! Spurning um að fara að taka lýsi??
Í fyrrinótt hélt ég vöku fyrir mömmu og pabba, gelti (hóstaði) eins og hvolpur nánast alla nóttina enda sofnuðu þau snemma í gærkveldi. Ég var líka eitthvað aum á leikskólanum en var öllu hressari í dag og fór í stuði á leikskólann.
Mamma er að fara á námskeið – eða fyrirlestur – í kvöld þannig að ég og pabbi verðum ein heima. Eigum örugglega eftir að gera eitthvað skemmtilegt saman, eins og að lesa Disney bækurnar mínar eða spila Colin McRae Rally 3 – alveg frábær bílaleikur (eða það finnst pabba allavegana!).
kveðja,
Eva Þórey









Nýlegar athugasemdir