Færslur í September 2003

Heimasíðan mín tilbúin!

Sæl og blessuð öllsömul. Loksins er hann pabbi búinn með heimasíðuna mína, tók hann ekki nema ár að klára hana loksins!! Það tók hann nefnilega nokkrar atrennur að klára þetta, því hann var aldrei ánægður með þau uppköst sem hann gerði.

En að sjálfsögðu er ég hæstánægð með síðuna hjá honum. Hérna get ég sagt frá því sem á daga mína drífur auk þess að geta sýnt ykkur myndir af mér og það er aldrei að vita hvað pabba dettur í hug að bæta við…

Mamma og pabbi hafa lofað að vera dugleg að skrifa fyrir mig, því ég er ekki alveg viss á hvernig þessi lyklaborð virka!

Verið ekki feimin að skrifa í gestabókina mína, mig langar að vita hverjir koma í heimsókn til mín.

kveðja, Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE