Ég, mamma og pabbi fenguð klippingu í gær. Hún Anna Þórdís kom heim til okkar og klippti okkur öll enda orðin svaka fín núna 
Þetta var í fyrsta skipti sem ég er klippt og ég kvarta ekki og kveina allan tímann, kominn svo sem tími til þar sem maður er orðinn 2ja ára. Anna Þórdis setti litla fléttu í hárið mitt og ég var svo montin að ég heimtaði að sofa með hana.
Nú er ekki nema rúm vika þangað til mamma og pabbi fara til útlanda, nánar tiltekið St. Johns á Nýfundnalandi (er það alltaf ný fundið???). Þau fara með fullt af fólki en þar á meðal eru Veiga amma, Ómi afi, Gestur frændi, Ása og Rabbi, Þóra, Gógó og Kjartan og fleiri. Þetta verður eflaust endalaust gaman hjá þeim, en ég verð hjá Snjólaugu ömmu, Kalla afa og Rögnu Kristínu frænku (á meira að segja sama afmælisdag og ég) á meðan.
Ég hlakka soldið til að fá þau til baka, sérstaklega þar sem þau ætla að kaupa eitthvað flott fyrir mig
)
Annars er ég að reyna að hætta með bleyjuna um þessar mundir. Það gengur bara nokkuð vel þrátt fyrir nokkur minniháttar “slys” en svona gengur þetta bara.
þangað til næst, Eva Þórey
Nýlegar athugasemdir