Ég er búinn að vera alveg ferlega montinn frá því í gær. Konan nefnilega fékk hæstu einkunn fyrir lokaritgerðina sem hún og skólasystir hennar gerðu saman.
Hún “eisaði” þessa síðustu önn sína í skólanum og nú er útskrift næst á dagskrá – laugardaginn 12. júní á Akureyri. Við ætlum hins vegar að fagna árangrinum á Hafnardögum nú um helgina; það verður dansiball á laugardagskveld og þá skal twistað. Eða, að minnsta kosti konan.
Mér finnst þetta ótrúlega töff vídjó:
http://www.vimeo.com/12236680
Sjá nánar: Inspired by Iceland og Vimeo.
Þegar ég legg bílnum mínum á morgnanna hér niður í bæ sendi ég SMS skilaboð til leggja.is þjónustunnar: P 3 XX-ZZZ (þar sem tölustafurinn 3 stendur fyrir gjaldsvæðið sem ég legg á).
Ég vildi óska þess ég gæti lagt bílnum beint fyrir utan vinnuna, sent téð SMS og einhver bílastæðasjóðsstarfsmaður kæmi snarlega og leggði bílnum fyrir mig í stæði á umbeðnu gjaldsvæði.
Það væri æði.
Er búinn að vera ferlega andlaus síðan ég kom að utan.
Held ég sé allur að koma til.
Mynd: roadsidepictures (á Flickr)
Á föstudaginn flýg ég frá eldfjallaeyjunni Íslandi til fyrirheitna landsins í vestri. Áfangastaður: Las Vegas.
Fyrir um það bil einum og hálfum mánuði síðan var ákveðið að ég færi á tölvunördaráðstefnuna DevConnections – þar sem Microsoft Visual Studio 2010 verður formlega lúnkað. Fyrstu dagana eftir mér var tilkynnt þetta lá mér við undirmigu að spenningi. Ég lá yfir korti af Vegas á Google Maps, skoðaði túrista upplýsingar og stúderaði The Hangover þangað til þráhyggjan jaðraði við hreina geðveiki.
Svo slakaði ég á….
Nú kortér í ráðstefnu er spenningurinn farinn að ágerast og hið forljóta andlit þráhyggjunnar komið aftur á stjá. Það hjálpar ekki að við þrjú sem erum að fara redduðum okkur miða á tónleika í Vegas – tónleika sem fyrir löngu er uppselt á. Og þetta eru engir smá-tónleikar; Muse spila fyrir dansi og krakkarnir í Silversun Pickups hita mannskapinn upp. Úff… Þetta. Verður. Mega.
Ráðstefnan er haldin á Bellagio hótelinu þar sem við gistum. Við hliðina á Bellagio er Caesars Palace hótelið þar sem kempurnar í Hangover sýndu okkur hvað Davíð keypti ölið. Það verður sem betur fer ekkert taxa- eða rútuvesen á milli hótels og ráðstefnu eins og þegar ég fór á PDC ráðstefnuna í Los Angeles 2005. Við vorum búin að ráðgera að leigja okkur bílaleigubíl og taka rúnt að Grand Canyon en þar sem það ku taka nánast heilan dag í framkvæmd er líklegt að við látum okkur nægja að skoða Hoover stífluna.
Fjölskyldan slúttaði páskunum þetta árið með því að skella sér í bíó. Fyrir valinu varð Að Temja Drekann Sinn (How To Train Your Dragon), skemmtileg mynd sem kom okkur öllum á óvart. Stelpurnar vildu ólmar sjá When In Rome en þar sem hún var ekki sýnd á Selfossi og við nenntum ekki til Reykjavíkur varð dreka myndin fyrir valinu – enda sá ekkert okkar eftir því.
Ef til vill var það hóflegum væntingum að þakka en okkur fannst myndin frábær; góð blanda af húmor, spennu og dramatík. Það kom okkur reyndar á óvart að salurinn var nánast tómur en við kvörtuðum svo sem ekki, gátum valið úr góðum sætum. Eini gallinn við sal #1 á Selfossi er að það er einhver fátans skítalykt þar inni – einhver hrærigrautur af ódaun þar sem mygla er hvað mest áberandi. Það hafði lukkulega engin áhrif á glápið.
Alltaf sama dramatíkin á 365 miðlum.
Í fimmfréttum þuldi fréttamaður upp: “Jarðskjálfti upp á 2.6 skók Þórsmörk í dag…”
2.6? TVEIRKOMMASEX!?!?!
Það eru meiri læti í tveimur mjaltakonum í snúsnú heldur en jarðskjálfta upp á tvo komma sex. Að minnsta kosti finnst mér frjálslega farið með orðið skók þarna.
mbl voru öllu hógværari í sínum fréttaflutning.
Ásdís Karen var ekki fyrr staðin upp úr pestinni sem hún var með þegar gamli lagðist eins og rakki í bælið.
Mér leiðist afskaplega að vera veikur.
Nýlegar athugasemdir